141. löggjafarþing — 59. fundur,  20. des. 2012.

sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

151. mál
[21:06]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sömu skoðunar. Það er ekkert mál að styðja frumvarp sem setur lagaumgjörð um söluferli eigna ríkisins. Mér finnst jafnframt mikilvægt að vita hvert markmiðið sé með eignarhaldi ríkisins og framtíðarsýn á þróun þess. Það liggur ekki fyrir.

Nú erum við með nýjar upplýsingar um hvernig eignarhaldi Arion banka og Íslandsbanka er háttað. Það þarf að koma fram með nýja stefnumótun varðandi fjármálamarkaðinn, eignarhald á fjármálafyrirtækjum, í ljósi þessara upplýsinga áður en við förum að samþykkja hér frumvarp um eitthvert söluferli.

Ég tel líka mjög mikilvægt að við mótum okkur skoðun á því hverjir séu hæfir eigendur banka en reynum ekki að fara í kringum það hugtak með því að loka augunum þegar verið er að stofna eignarhaldsfélag sem á í eignarhaldsfélagi sem á í enn öðru eignarhaldsfélagi, allt gert til þess að fela óhæfa eigendur fjármálafyrirtækja.

Ég mundi helst vilja að þingheimur vísaði þessu frumvarpi frá. Það er allt í lagi að vera með almenna lagaumgjörð um söluferli á hlut ríkisins í fyrirtækjum, jafnvel fjármálafyrirtækjum, en þá þarf líka að vera einhver framtíðarsýn um hvernig eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum eigi að vera háttað.