141. löggjafarþing — 59. fundur,  20. des. 2012.

rannsóknarnefndir.

416. mál
[21:42]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Álfheiður Ingadóttir hefur gert grein fyrir niðurstöðu meiri hlutans í ræðu hér og er í sjálfu sér ástæða til að taka undir margt sem þar kom fram. Ég hef í umfjöllun nefndarinnar haft nokkrar áhyggjur af því ákvæði sem lýtur að skaðleysi nefndarmanna. Ég hef ekki haft sérstakar áhyggjur af öðrum ákvæðum frumvarpsins, en 3. gr. sem felur í sér skaðleysi nefndarmanna hefur vakið athygli mína vegna þess að það er afar víðtækt. Það er auðvitað rétt sem hefur komið fram og kemur fram í gögnum málsins að hér er um að ræða orðalag sem tekið er úr lögum um rannsóknarnefnd Alþingis frá 2008 eins og þeim var breytt með lagabreytingu 2009 og á sér fyrirmynd í því. Hins vegar var það tilfinning mín og afstaða að þarna væri um að ræða fullvíðtækt skaðleysisákvæði miðað við tilefnið.

Nú hafa verið vangaveltur um það hvernig skaðleysi er í öðrum ákvæðum. Eins og menn hafa farið yfir eru til ákveðin ákvæði sem fela í sér skaðleysi tiltekinna embættismanna undir ákveðnum kringumstæðum. Á fyrri stigum í málinu og í greinargerð með frumvarpinu var vísað til ákvæðis um heimild alþingismanna til að tjá sig í ræðustól Alþingis án þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar fyrir það nema með samþykki þingsins. Með sama hætti var vísað til ákvæðis um dómara, en ég hygg nú að þegar þau ákvæði eru skoðuð sjáist að þau eru ekki sambærileg, hvorki tilefnið né útfærslan.

Það ákvæði sem hefur helsta samsvörun við þetta er ákvæði um umboðsmann Alþingis sem felur það í sér að ekki er hægt að draga umboðsmann til ábyrgðar fyrir það sem fram kemur í álitum hans nema umboðsmaður sjálfur fallist á að taka til varna fyrir dómstóli. Það er ekki alveg sambærilegt, en hins vegar er ákveðin samsvörun með stöðu umboðsmanns og nefndarmanna í rannsóknarnefndum sem hér um ræðir, þó ekki að öllu leyti.

Vakið hefur athygli að mismunandi leiðir eru farnar í löndunum í kringum okkur um þetta. Okkur í nefndinni hefur ekki enn gefist kostur á að fara djúpt í þá rannsókn en þó hefur komið fram að í Danmörku er ekki fyrir hendi skaðleysisákvæði í líkingu við það sem hér er að finna. Í Noregi eru önnur ákvæði sem taka að minnsta kosti til hluta þeirra tilvika sem þarna getur verið um að ræða, en mér sýnist þó í fljótu bragði að ákvæðið í frumvarpinu og ákvæðið í lögunum um gömlu rannsóknarnefndina frá 2009 séu víðtækari en það sem er að finna í Noregi.

Ég tek undir það og fagna því að framsögumaður nefndarinnar skuli óska eftir því að málið komi aftur til umfjöllunar í nefndinni því að ég hygg ástæða sé til að fara betur yfir það.

Almenna reglan í íslenskum rétti er sú að menn bera ábyrgð á orðum sínum og gjörðum og hægt er að draga menn til ábyrgðar t.d. fyrir ærumeiðandi ummæli eða annað þess háttar. Eins er hægt að sækja menn í einkamáli fyrir skaða sem þeir valda þótt síðar geti komið til húsbóndaábyrgð, eftir atvikum ríkisins eða á annarra vinnuveitenda, á því sem þeir kunna að vera dæmdir til að greiða. Þarna er því um að ræða ákveðna meginreglu um að menn eigi stjórnarskrárvarinn rétt til að tjá skoðanir sínar, en í sama ákvæði er hins vegar líka kveðið á um að menn verði að ábyrgjast ummæli sín fyrir dómi.

Skaðleysisákvæði af því tagi felur í rauninni í sér að hin stjórnarskrárvarða heimild er tekin úr sambandi í tilteknu tilviki sem gefur auðvitað strax tilefni til að velta vöngum yfir því hvort of langt sé gengið. Sama á við um almennan rétt manna til að fá skorið úr um rétt og skyldu fyrir dómi, en þarna er gert ráð fyrir að óheimilt sé að höfða dómsmál út af þeim tilteknu atriðum sem um ræðir, þ.e. að ekki sé hægt að beina kröfum í einkamáli eða málum sem varða ærumeiðingarkafla hegningarlaganna gagnvart þeim sem sitja í rannsóknarnefndum.

Ég held að það sé hárrétt hjá meiri hluta nefndarinnar að þrengja orðalag ákvæðisins eins og hér hefur verið gerð grein fyrir. Orðalagið er býsna víðtækt eins og það er. En enn þá stendur eftir meginspurningin í málinu sem er um þá hugmynd að þeir sem starfa í rannsóknarnefndum eigi að vera skaðlausir og þurfi ekki undir neinum kringumstæðum að ábyrgjast ummæli sín fyrir dómi og að ekki sé með nokkrum hætti hægt að koma að kröfum í einkamáli gegn þeim vegna þess sem þeir gera í störfum sínum.

Þarna vegast á sjónarmið. Auðvitað vitum við að tilefni lagasetningar af þessu tagi er að koma í veg fyrir að hægt sé að trufla rannsóknir eða hafa áhrif á rannsóknir rannsóknarnefnda af þessu tagi með málaflóði, málsóknum og þess háttar, eða að hægt sé að hræða menn frá því að komast að tilteknum ályktunum eða þess háttar með hótunum um málsóknir eða þess háttar, en á það ber þó að líta að aðrir í samfélaginu sem hafa rannsóknarvald, eftirlitsvald og úrskurðarvald eru ekki almennt talað undanþegnir með þessum hætti, ekki ef frá er talinn umboðsmaður, en þó er skaðleysi hans útfært með nokkuð öðrum hætti.

Einnig verður að horfa til þess að staða umboðsmanns er með ýmsum hætti ólík stöðu þeirra sem skipaðir eru í rannsóknarnefndir. Umboðsmaður er kjörinn af þinginu til tiltekins fjölda ára og nýtur lögum samkvæmt sérstakrar verndar. Það er ekkert sem útilokar að umboðsmaður sé kjörinn á pólitískum forsendum þó að sem betur fer hafi aldrei komið til þess hér á landi eða í næstu nágrannalöndum okkar. Sama á við um þá sem skipaðir eru í rannsóknarnefndir. Ekki er útilokað að harðsvíraður meiri hluti á þingi með harðsvíraðan forseta í forustu skipi rannsóknarnefndarmenn á sínum forsendum, ekki óhlutdræga menn heldur jafnvel afar harðvítuga pólitíska samherja, hugsanlega til þess að koma höggi á pólitíska mótherja, því að viðfangsefni rannsóknanna eru oft af pólitískum toga, við megum ekki gleyma því. Þetta eru þó allt saman teóretískar vangaveltur.

Þess vegna verð ég að segja að mér finnst nokkuð bratt að móta hér þá almennu reglu að rannsóknarmennirnir þurfi ekki með neinum hætti að ábyrgjast störf sín, að þeir geti sett hvað sem er fram í álitum sínum án þess að með nokkrum hætti sé hægt að fá úr því skorið fyrir dómstólum hvort of langt sé gengið eða ekki. Mér finnst það býsna langt gengið.

Eina fordæmið sem við höfum beinlínis fyrir því hér er rannsóknarnefndin frá 2008 með breytingunni frá 2009, sem var, eins og framsögumaður nefndarinnar gerði grein fyrir, sett á fót við mjög sérstakar aðstæður. Ég vil leyfa mér að segja, af því að ég átti þátt í nefndarstarfi sem leiddi til þeirrar lagasetningar, að ég er ekki viss um að sá þáttur málsins hafi verið þrautrannsakaður eða þrautræddur þegar að niðurstöðu var komist. Þess vegna er ég ekki þeirrar skoðunar að það sé endilega gott að líta til þess dæmis sem fordæmis í málinu.

Ég ætla ekki að lengja umræðuna að þessu sinni en ég er þeirrar skoðunar að það sé gott að málið komi aftur til umfjöllunar í nefndinni milli 2. og 3. umr. Ég hef enn þá fyrirvara varðandi 3. gr. vegna þess víðtæka skaðleysis nefndarmanna sem þar er tilgreint, en fagna því að nefndin gefi sér færi á að skoða málið betur. Ég tek líka undir það sem fram hefur komið af hálfu meiri hlutans í nefndinni að æskilegt sé að farið verði á næsta ári í skoðun á lögunum í heild þegar nokkur reynsla er komin á framkvæmd þeirra. Þó að við styðjumst við einhverjar fyrirmyndir, að einhverju leyti frá öðrum löndum, fyrirmyndir frá hinni fyrstu rannsóknarnefnd Alþingis, erum við enn að þróa löggjöfina. Við eigum að nýta það tækifæri sem gefst þegar þessar fyrstu rannsóknarnefndir, sem starfa samkvæmt lögunum frá 2011, ljúka störfum, að læra af því.

Atriðið varðandi skaðleysi nefndarmanna er enn þá atriði sem ég hef áhyggjur af þó að ég telji engu að síður að breytingartillögur sem fram hafa komið séu til bóta.