vörugjöld og tollalög.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar sem að standa auk mín þingmennirnir Magnús Orri Schram, Skúli Helgason, Lilja Rafney Magnúsdóttir og hv. þm. Jón Bjarnason, með fyrirvara.
Þetta mál hefur verið til talsverðrar umfjöllunar í nefndinni enda umfangsmikið og flókið. Þar áður í fjármálaráðuneytinu og í tveimur starfshópum á þess vegum og lýtur að tveimur nokkuð óskyldum atriðum í tengslum við vörugjöldin.
Forsaga málsins er sú að í tengslum við inngönguna í EFTA var tekið upp á Íslandi fyrir áratugum síðan vörugjaldakerfi líkt því sem þekkist hjá frændum okkar Dönum, sem leggst á ýmsar innfluttar vörur auk þeirra tolla sem eru í landinu og skapa ríkissjóði umtalsverðar tekjur. Þetta vörugjaldakerfi hefur verið við lýði í áratugi en þó með einu hléi því á kjörtímabilinu 2007–2009 þegar Samfykingin og Sjálfstæðisflokkurinn voru í meiri hluta og smjör draup af hverju strái töldu menn sig hafa efni á því að afleggja vörugjöld af matvælum og höfðu þau enda sætt talsverðri gagnrýni. Auðvitað er það svo um vörugjöld eins og tolla og aðrar viðskiptaálögur almennt að betra væri að vera án þeirra en með þeim. Án þessara tekna gat nú ríkissjóður ekki verið til lengdar því þegar efnahagur landsins hafði hrunið og hallinn var orðinn 216 milljarðar var þessu snúið aftur til fyrra horfs og vörugjöldin tekin aftur upp í matvörunni eins og hafði verið í áratugi á undan undir stjórn forustu allra þeirra flokka sem þann tíma skipuðu ríkisstjórnir í landinu.
Þetta kerfi er yfirleitt einkum gagnrýnt fyrir að ekki sé samræmi á milli álagningar á svipuðum vörum sem falli í ólíka tollflokka og beri þess vegna ólík vörugjöld, sumar engin vörugjöld. Ágætt dæmi um það er til að mynda skjáir. Nú er það svo að sjónvarpsskjáir falla í einn tollflokk sem ber 30% vörugjöld meðan tölvuskjáir hins vegar falla í annan tollflokk og bera þess vegna 0% vörugjöld. Nú hefur þróunin auðvitað orðið þannig að smátt og smátt er þetta að verða einn og sami hluturinn og erfitt að skilja hvers vegna það ætti að vera í tveimur flokkum. Þess vegna er auðvitað mikilvægt að kerfið sé endurskoðað reglulega og gerðar breytingar til þess að mæta slíkum athugasemdum og gagnrýni.
Fræg gagnrýni af þessu tagi hefur verið sú að ólík vörugjöld legðust á brauð eftir því hvort það væri ristað lóðrétt eða lárétt vegna þess að grill bæru önnur vörugjöld en brauðristar. Annar þáttur þess frumvarps sem hér er til afgreiðslu lýtur að því að gera nokkrar breytingar í vörugjaldakerfinu til að mæta svona athugasemdum og bæta úr slíku ósamræmi. Ég held að óhætt sé að segja að það sé nokkuð góð samstaða um að þær tillögur séu til bóta á því kerfi sem við erum með til þess að afla tekna í ríkissjóð.
Hinn þáttur málsins lýtur að vörugjöldunum á matvöruna sem hafa einkum verið rökstudd með því að þar sé fyrst og fremst verið að leggja á sykraðar vörur, taka inn fyrir það talsverðar tekjur og vísað m.a. til manneldissjónarmiða í því sambandi. Vörugjaldakerfið er hins vegar ekki mjög nákvæmt í því að leggja á sykur, þ.e. gamla vörugjaldakerfið. Þannig er niðurstaðan í því að sumar vörur sem eru með sykri bera engin vörugjöld en aðrar vörur sem hafa lítinn eða nánast engan sykur bera vörugjöld. Það er þess vegna með vörugjaldakerfið í matvælum eins og hið almenna vörugjaldakerfi að þar hefur verið ýmislegt ósamræmi. Það hefur þó verið talið betur fallið til að ná þessum markmiðum en sú grófa aðferð að nota bara hin ólíku virðisaukaskattsþrep á heilu vöruflokkana til að leggja á vörur með eitthvert manneldismarkmið að leiðarljósi því við slíka álagningu var það áður fyrr þannig að til dæmis var hærri skattur á vatn á flöskum en á aðrar vörur vegna þess að það var verið að skattleggja gos og það lenti í flokknum með gosinu o.s.frv.
Til þess að reyna að gera þetta markvissara þegar vörugjöldin voru endurupptekin 2009 lögðu Samtök iðnaðarins mikla áherslu á það fyrir sitt leyti að ef það ætti að gera á annað borð væri sanngjarnast og best að leggja gjaldið á sykurinn sjálfan. Þannig væri mest innra samræmi í skattlagningunni og markmiðunum best náð. Þá væru framleiðendur líka í færum til að lækka hjá sér þessi gjöld með því einfaldlega að minnka þann sykur sem þeir nota í framleiðsluna þannig ef ætlunin væri að hafa áhrif á það hversu mikill sykur væri í neysluvörum mundi það hafa áhrif með þeim hætti.
Það var af ýmsum ástæðum ekki talið unnt að verða við því þegar vörugjöldin voru tekin hér upp aftur 2009 og kannski ekki síst vegna þess knappa tíma sem var til að grípa til ráðstafana í ríkisfjármálum á þeim miklu erfiðleikatímum.
Það er hins vegar sú leið sem fjármálaráðherra leggur til í þessu stjórnarfrumvarpi, að vörugaldið leggist á sykur og taki mið af sykurinnihaldi vörunnar. Það þýðir að ýmsar vörur sem hafa ekki borið vörugjöld en eru með sykri fá þá á sig vörugjöld sem byggir bara á því hversu mikið sykurmagn er í þeim. Það hefur raunar líka þær afleiðingar að einstaka vörur hafa í gamla vörugjaldakerfinu verið með hærri gjöldum en sykurinnihald þeirra endurspeglar í sjálfu sér. Lakkrís, súkkulaði og karamellur eru dæmi um slíkar vörur. Lýðheilsustofnun gerir alvarlegar athugasemdir við það í umfjöllun málsins að þótt hér væri verið að auka álögur á sykurvörur með manneldismarkmið að leiðarljósi drægi sú staðreynd að þessar vörur lækkuðu í verði úr því að frumvarpið næði markmiði sínu, a.m.k. að hluta til ef ekki að öllu leyti.
Við það að ná í tekjur, þeim 800 millj. sem frumvarpið gerir ráð fyrir að skili sér í ríkissjóð á næsta ári með þessum breytingum, eru í meginatriðum fjórar leiðir ef beita á neyslusköttum. Í fyrsta lagi er sú leið að hækka neðra þrep virðisaukaskattsins sem ýmsir umsagnaraðilar voru meðmæltir. Það hefur þann augljósa ókost að margvíslegar nauðsynjavörur, matvara almennt, tæki þá verðlagshækkun. Hún hefur þess vegna af pólitískum ástæðum ekki verið talin koma til álita til öflunar þessara 800 millj. kr. tekna.
Þá eru þrjár aðrar leiðir sem kæmu til álita. Ein væri sú að lækka gömlu vörugjöldin í matvörunni um svo sem eins og helming en flytja suma vöruflokka aftur upp í 25,5% þrepið. Það er mjög gróf aðferð en skilar út af fyrir sig sömu tekjum. Í öðru lagi væri að viðhalda þessu gamla vörugjaldakerfi áfram en hækka álagninguna um helming. Í þriðja lagi er það sú aðferð sem ráðherrann leggur til í frumvarpi sínu, að leggja gjaldið á sykur. Það er afstaða meiri hluta nefndarinnar að af þessum þremur kostum — og ég hygg að það hafi nú komið fram hjá ýmsum umsagnaraðilum líka, til slíkrar tekjuöflunar og til þess að innra samræmi sé í henni og hún þjóni þeim markmiðum best sem er lýst yfir að málið eigi að ná — taki þessi aðferð hinum tveimur fram. Meiri hlutinn mælir þess vegna með því að frumvarpið verði að lögum með þeim breytingum sem getur í því þingskjali sem fylgir nefndaráliti meiri hlutans.
Við leggjum áherslu á að auðvitað er fyrst og fremst um tekjuöflunaraðgerð að ræða upp á 800 millj. kr. og við teljum að það sé mikilvægt að farið verði í heildarendurskoðun á neyslusköttum, þrepunum í virðisaukaskattinum, á vörugjöldunum og áhrifum tolla og annarra slíkra þátta, með það að markmiði að auka enn frekar samræmi og einfaldleika þó mest af öllu.
Nefndarálitið sem og breytingartillögurnar finna hv. þingmenn á þeim þingskjölum sem hefur verið dreift. Ég hygg að málið þurfi ekki að ganga til nefndar á milli 2. og 3. umræðu.