141. löggjafarþing — 59. fundur,  20. des. 2012.

vörugjöld og tollalög.

473. mál
[22:24]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ef einhver var í vafa um hvort þetta væri einfalt eða flókið held ég að hv. þm. Helgi Hjörvar hafi alveg sannfært alla um það í seinna andsvari sínu að málið er orðið mjög flókið. Þetta er orðið enn eitt flækjustigið. Það er ekki hægt að segja að þetta með sætuefnið sé bara hliðarmál, það gengur ekki upp. Þetta er enn eitt flækjustigið í mjög flóknu kerfi. Kjarni málsins er að við erum búin að taka út bæði markmið frumvarpsins sem áttu að vera einfaldleiki og neyslustýring. Hvorugt gengur upp. Þetta er bara flókin skattahækkun, það er vandinn. Það þarf ekkert að hafa mjög mörg orð um þetta, þetta er bara þannig að við erum með mjög flókið vörugjaldakerfi, skattkerfi og það er fyrir lifandi löngu búið að missa sjónar á því hver markmiðin voru.

Það er ekki svo einfalt, því miður og sem betur fer, að því meira sem menn hækki gjöld því meira komi í kassann hjá ríkinu. Það er ekki þannig, virðulegi forseti. Við erum í samkeppni um fólk, að það vilji búa hér og sömuleiðis ferðamenn og annað. Það er bara þannig. Við höfum líka tækifæri til þess að kaupa hinar ýmsu vörur annars staðar en á Íslandi. Ef ég man rétt er til dæmis markaðshlutdeild barnafatnaðar um 50% hér á landi, þ.e. 40–50% af þeirri vöru er keypt í útlöndum. H&M-verslunin, sem er risaverslun úti í heimi, er með 20–30% markaðshlutdeild hér á landi og hún er ekki hér á landi. Menn skulu ekki segja að þetta sé einfalt.

Þessi ríkisstjórn hafði gríðarlega mikla möguleika þegar hún tók við og líka allt kjörtímabilið á því að fara í einföldun á öllu þessu kerfi. Því miður var farin sú leið að með hverri breytingu jókst flækjustigið. Flækjustig hefur ótrúlega marga galla. Einn þátturinn er sá að hann er mjög atvinnuhvetjandi í mjög neikvæðri merkingu sem gerir það að verkum að fullt af fólki eyðir gríðarlega miklum tíma í að stúdera mannanna verk sem eru í þessu tilfelli eins og flestum öðrum slíkum tilfellum mjög ófullkomin. Þetta hamlar verslun og viðskiptum á Íslandi. Það er ekkert annað sem gerist ef við erum með of há gjöld. Ef við erum ekki samkeppnishæf, ef Íslendingar versla frekar í útlöndum en hér, erum við að færa störf frá Laugaveginum, virðulegi forseti, til útlanda. Það er bara þannig. Þetta eru ekki bara vörugjöld, þetta eru ekki bara tollar, þetta er líka virðisaukaskattur.

Við höfum aldrei, virðulegi forseti, farið þá leið að leggja það almennilega niður fyrir okkur hvernig við mundum vilja sjá þetta kerfi. Að vísu spilar fleira inn í, áfengisgjöld og ýmislegt annað, svo blessuð fríverslunin, en ríkið er að verða einn alstærsti aðilinn á verslunarmarkaði vegna þess að við ýtum verslun þangað beint og óbeint en sú verslun er fyrir það fólk sem hefur efni á að fara til útlanda. Því meira og því lengra sem við göngum með þessum hætti þeim mun líklegra er að við búum til fátæktarskatta.

Virðulegi forseti. Það er löngu sannað að innflutningstakmarkanir, hvort sem þær felast í einhvers konar vörugjöldum, tollum eða öðru, þrátt fyrir að þær geti til skamms tíma skilað einhverjum tekjum í kassann, allt slíkt sem hamlar verslun og viðskiptum dregur úr lífskjörum viðkomandi þjóða til lengri tíma. Þess vegna gera menn allra handa viðskiptasamninga. Þess vegna er markmiðið með Alþjóðaviðskiptastofnuninni að koma á fríverslun um heiminn. Það er ekki bara af því að það sé svo gaman heldur fyrst og fremst til þess að auka lífsgæði fólks. Við höfum ekki nýtt þau tækifæri, ekki í það minnsta undanfarin ár, sem við höfum til að vera framsækin á því sviði og því síður farið í einhliða aðgerðir sem við höfum algjört frelsi til að gera þegar við erum ekki í tollabandalagi eins og Evrópusambandinu. Ef við förum þangað inn verðum við að vonast til þess að einhverjir útlendingar hafi vit fyrir okkur.

Virðulegi forseti. Þetta mál er afskaplega dapurlegt og það er mjög dapurlegt þegar stjórnvöld reyna að slá ryki í augu fólks með því að nota eitthvað sem hljómar vel, eins og í þessu tilfelli, að verið sé að hugsa um heilsu fólks, þegar innstæðan er engin. Þessi ríkisstjórn hefur ekki verið léleg, hún hefur verið miklu verri, hún hefur verið algjörlega handónýt þegar kemur að forvarnamálum og tekið stefnumótun sem var vel unnin, kynnt haustið 2008, með vel skilgreind markmið, tímasett með ábyrgðaraðilum og öðru slíku, og hent henni út í hafsauga og ekki komið með neitt annað í staðinn. Það er eitt af mörgu, virðulegi forseti, sem hefur glatast á þessum fjórum árum. Eitt af þessum glötuðu tækifærum eru tækifæri í forvörnum hér á landi.

Virðulegi forseti. Það sem er jákvætt við að við erum núna klukkan hálfellefu þann 20. desember að ræða háalvarlegt mál eins og þetta er bara eitt: Það er það að með hverri mínútunni styttist í að ríkisstjórnin fari frá.