vörugjöld og tollalög.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, en undir það ritar ásamt mér hv. þm. Lilja Mósesdóttir.
Eins og hefur komið fram er í þessu frumvarpi lagðar til breytingar á almennum vörugjöldum sem lögð eru á samkvæmt lögum um vörugjald, nr. 97/1987. Yfirlýst markmið frumvarpsins er tvíþætt, annars vegar að gera álagningu vörugjalda skilvirkari og einfaldari, auk þess að sníða af agnúa og misræmi, en hins vegar að færa álagningu vörugjalda í það horf að gefa skýrari hagræn skilaboð til að færa neyslu matvæla í átt til aukinnar hollustu með svokölluðum sykurskatti. Auk þess er því ætlað að auka tekjur ríkissjóðs um 800 millj. kr. á árinu 2013 eða 960 millj. kr. á ársgrundvelli.
Offita hefur aukist gífurlega um heim allan og er hún nú talin eitt stærsta heilsufarsvandamálið. Rannsóknir sýna að þróunin hér á landi er svipuð og í Ameríku og Evrópu. Orsakir aukinnar offitu eru taldar vera samspil mataræðis, erfða, umhverfis og hreyfingarleysis. Afleiðingar offitu eru fjölmargar en ekki hvað síst lífshættulegir sjúkdómar á borð við sykursýki 2, háþrýsting, hjarta- og æðasjúkdóma, blóðfituröskun, efnaskiptavillu, kæfisvefn og nokkrar tegundir krabbameins. Auk þess hefur verið sýnt fram á tengsl við margvísleg sálræn og félagsleg vandamál. Aukin offita barna og unglinga hefur verið sérstakt áhyggjuefni.
Í greininni „Offita – Hvað er til ráða“, sem er rituð af tveimur starfsmönnum embættis landlæknis, er bent á að offita og ofneysla sé samfélagslegur vandi og bregðast verði við honum á fjölþættan máta. Þar er nefnd heildræn heilsustefna fyrir börn þar sem sveitarfélög, skólar og íþróttafélög tækju höndum saman til að hvetja til hreyfingar og heilsusamlegs fæðis, stefnu á borð við þá sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson nefndi að hann hefði lagt fram þegar hann var heilbrigðisráðherra. Stjórnvöld og matvælaframleiðendur mundu svo styðja við það starf með upptöku Skráargatsins, samnorræns hollustumerkis, en hv. þm. Siv Friðleifsdóttir átti frumkvæði að því að Alþingi ályktaði um upptöku þess. Með því geta neytendur á auðveldari og myndrænan hátt valið hollari matvöru með tilliti til mettaðrar fitu, salts, viðbætts sykurs og trefja. Var einkar ánægjulegt hvað Alþingi náði vel saman um það. Höfundar benda einnig á verðstýringu með sköttum eða vörugjöldum með sérstakri áherslu á sykraða gos- og svaladrykki. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í grein sem birtist í New England Journal of Medicine á árinu 2009 er talað um að aukin neysla sykraðra gos- og svaladrykkja geti verið ein helsta orsök offitufaraldursins. Þar er talað um að verðstýring með sköttum eða vörugjöldum á sykraða gosdrykki geti verið áhrifarík leið til að minnka neyslu á slíkum vörum og að slík verðhækkun gæti haft áhrif þar sem þörfin er brýnust, þ.e. hjá börnum og ungmennum og öðrum þeim sem drekka mest gos.“
Því hefði mátt ætla að embætti landlæknis mundi fagna frumvarpinu og styðja það heils hugar. Það gerir embættið ekki í umsögn sinni og bendir á að markmið þess um manneldissjónarmið muni ekki nást með fram komnum tillögum. Vörugjald á gosdrykki mun einungis hækka lítillega, eða um 5 kr. á lítra eða 2,5 kr. á hálfan lítra. Vörugjald á súkkulaði lækkar hins vegar um 16 kr. á kíló, einnig á ýmsu öðru sælgæti og kexi. Niðurstaðan verður því lítil breyting á neyslu gosdrykkja en neysla gæti aukist á sælgæti, sem flestir telja víst vera næga fyrir.
Embætti landlæknis bendir á að bein hækkun vörugjalda á gosdrykki og sælgæti gæti verið árangursríkari leið til að draga úr sykurneyslu landsmanna. Aðrir hafa velt upp hugmyndum um að færa þessar vörur upp í hærra þrep virðisaukaskattsins. Rannsóknir um verðteygni neytenda við kaup á matvælum styðja þetta, en verðteygni er þó frekar lítil, þ.e. verðbreytingar hafa lítil áhrif á eftirspurn. Hún er þó meiri í vörum sem teljast ekki nauðsynjavörur og hjá börnum og unglingum. Í framsöguræðu hv. þm. Helga Hjörvars, talsmanns meiri hlutans í nefndinni, fór hann í gegnum ýmsar hugmyndir sem hafa verið ræddar um þetta.
Það er mjög brýnt að dregið verði úr þyngdaraukningu þjóðarinnar. Það er ekki aðeins um að ræða mjög skert lífsgæði eins og ég fór í gegnum og jafnvel ótímabæran dauða þeirra einstaklinga sem berjast við offitu heldur gífurlegan kostnað fyrir samfélagið allt. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, hagfræðingur, áætlaði að ef landsmenn héldu áfram að þyngjast mundi það kosta þjóðarbúið um 2–4 milljarða kr. í auknum útgjöldum bara í heilbrigðiskerfinu.
Það er ágætt að setja þessa tölu í samhengi. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu 2013 er gert ráð fyrir að almenn vörugjöld muni skila ríkissjóði um 5 milljörðum í tekjur. Á sama tekjuári 2013 er áætlað að við munum ráðstafa í kringum 123 milljörðum kr. í heilbrigðiskerfi okkar. Ef hægt væri að ná fram yfirlýstum markmiðum þessa frumvarps um að færa neyslu í átt til aukinnar hollustu og draga þar með úr þyngdaraukningunni gætum við verið að tala um ekki bara auknar tekjur fyrir ríkissjóð heldur værum við fyrst og fremst að draga úr útgjöldum ríkissjóðs. Þar væri um að ræða umtalsvert hærri upphæðir en þá sem ég nefndi, 2–4 milljarða kr., því þá er aðeins átt við heilbrigðiskerfið en ekki kostnaðinn fyrir viðkomandi einstakling eða kostnað fyrir almannatryggingakerfið þegar fólk er ekki fært um að vinna, þarf á sjúkradagpeningum að halda o.s.frv. [Kliður í þingsal.]
Við sem ritum undir þetta álit tökum undir athugasemdir frá embætti landlæknis og teljum ljóst að meginmarkmið frumvarpsins eru fyrst og fremst tekjuöflun en ekki yfirlýst manneldis- eða lýðheilsusjónarmið og getum því ekki stutt frumvarpið.
Við gerum jafnframt athugasemdir við að ekki virðist gert ráð fyrir að nýta auknar tekjur af vörugjöldum í lýðheilsuverkefni gegn offitu, svo sem að aðstoða sveitarfélög við að tryggja skólabörnum hollari mat eða til að auka fræðslu um mikilvægi hollrar fæðu og hreyfingar.
Það að afgreiða þetta mál svona sýnir að mínu mati mikla skammsýni hjá meiri hlutanum á Alþingi sem nýtir svo sannarlega ekki tækifærið til að reyna að ná manneldismarkmiðum og draga úr neyslu sykurs. Þar af leiðandi munum við hvorki sjá þann sparnað sem þjóðarbúið gæti hugsanlega uppskorið né heldur aukin lífsgæði þess fólks sem á við offitu að stríða.