fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég skildi svar hv. þingmanns þannig að hún telji meira virði að gæta þröngra hagsmuna barna, þ.e. að framfærsla þeirra sé tryggð eftir fæðingu en ekki endilega að líta á jafnréttissjónarmiðin, sem ég horfi reyndar frekar til. Nú hef ég heyrt þær fréttir, og ég er ekki í hv. nefnd sem um þetta fjallar, að karlmenn sæki minna í fæðingarorlofið. Ef ástæðan er sú að menn óttist að missa vinnuna hefði ég haldið að konur gætu líka óttast það, ég held að það hljóti að vera jafnt á komið með það. Það er einhver önnur ástæða en bara þetta. Ég hef grun um að það sé vegna þess að þakið er orðið svo lágt og þar sem karlmenn líta enn á sig sem fyrirvinnur telji þeir sig ekki hafa efni á því að fara í fæðingarorlof. Svo færist þetta í vöxt vegna þess að misréttið er svo mikið í þjóðfélaginu undir þessari velferðarstjórn að karlmenn eru yfirleitt með hærri laun og tapa því meiru ef þeir fara í fæðingarorlof.
Ég tel því að það að hafa þak á þessu yfirleitt sendi þau skilaboð út til fólks að jafnrétti eigi ekki að gilda um þá aðila, karl eða konu, sem eru með mjög há laun. Þar eigi karlarnir að vera áfram í vinnunni og um leið kosta þeir atvinnulífið minna. Það er dálítið merkilegt að sú skuli vera niðurstaðan.
Hv. þingmaður svaraði því vel að þetta væri framhlaðið og það væri meðvitað gert að láta fjármálaráðherra framtíðarinnar borga það. Ég held að í núverandi stöðu sé það ekkert sérstaklega skynsamlegt vegna þess að staða ríkissjóðs er engan veginn eins góð og menn vilja vera láta, alltaf kemur meiri og meiri halli í ljós eftir á.