fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Hv. þingmaður segir að við þurfum að koma til móts við dagvistunarvanda barna í dag með lengingunni. Bíddu, hvað er frumvarpið að segja? Erum við að lengja þetta á morgun? Erum við að lengja þetta á næsta ári? Erum við að lengja þetta á þarnæsta ári? (Gripið fram í.)
Við erum að lengja og lengingunni lýkur ekki fyrr en 2016. Ég spyr aftur, hvern er verið að plata hér? Hvað er verið að segja með þessu? Við eigum miklu frekar að leysa það hvernig dagvistunarmálum er háttað á sviði sveitarstjórna. Það sem skiptir máli er að drjúgur partur af mínum flokki styður fæðingarorlofið, styður lenginguna, styður hækkun á þaki. En það verður að vera gert á raunhæfum forsendum, á þeim forsendum að við höfum efni á því.
Já, ég hvatti ríkisstjórnina til dáða að vera ekki að skerða fæðingarorlofið heldur fara frekar í aðra forgangsröðun og ég nefndi það í minni ræðu. Hvað vorum við að tala um í síðustu viku? Við vorum að tala um rammaáætlun sem setur stopp á allar virkjunarframkvæmdir. Hvað þýðir það? Það þýðir að við förum ekki í virkjanir á næstu árum, ekki í vatnsaflsvirkjanir á næsta ári, ekki þarnæsta og hugsanlega ekki fyrr en eftir tvö, þrjú ár. Hvað þýðir það? Það þýðir seinkun á hagvexti, hugsanlegri kaupmáttaraukningu, á fjárfestingarmöguleikum okkar Íslendinga. Við þurfum á hagvexti að halda, við þurfum á verðmætasköpun að halda. (Gripið fram í.) Já, til dæmis Vaðlaheiðargöng. Eru þau sú verðmætasköpun sem við ætlum að fara í á þessu ári? Er það rétt? Ég er búin að segja og ég segi það aftur: Ég hefði kosið að Vaðlaheiðargöng hefðu verið sett aftar í forgangsröðina. Bæði í ljósi annarra samgönguverkefna en líka í ljósi þeirra verkefna sem við stöndum frammi fyrir á sviði fæðingarorlofs, einnig á sviði menntamála, menningarmála og ekki síst á sviði heilbrigðismála þar sem er greinilega fjármagnsþörf.
Ég segi því: Ef við ætlum að leysa dagvistunarvandann í dag ætti frumvarpið að segja: (Forseti hringir.) Lengjum fæðingarorlofið núna strax um áramótin.