ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegur forseti. Við stjórnarliðar munum ekki hafa uppi atkvæðaskýringar við einstaka liði í þessari atkvæðagreiðslu enda er ætlunin að reyna að ljúka þingstörfum í kvöld.
Þetta frumvarp er mikið rætt í þinginu og þær breytingartillögur sem liggja fyrir lúta aðallega að ýmsum endurbótum á málinu til að koma til móts við sjónarmið aðila við þinglega meðferð og til að draga úr skatta- og gjaldahækkunum sem fyrirhugaðar voru með jákvæðum áhrifum fyrir fólk og fyrirtæki í landinu. Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í dag með Samtökum atvinnulífsins og Samtökum fjármálafyrirtækja kom fram ósk um að nefndin biði með lögfestingu ákvæðis um eftirgjöf á sköttum á vaxtatekjum úr landi sem nefndin hugðist lögfesta í dag en að við ynnum, í samráði við hagsmunaaðila í þeirri yfirferð sem þegar lá fyrir að þyrfti að fara í með afleiðuviðskiptin í byrjun janúar, það mál þannig (Forseti hringir.) að það væri ekki klárað á kvöld- eða næturfundi rétt fyrir jól, heldur vandað vel til verka og það kæmi fullbúið inn á þing í janúar. Áformin um áhrif á tekjuöflun ganga eigi að síður eftir, þ.e. að 1.600 milljónir komi af afdráttarsköttum á komandi ári.