141. löggjafarþing — 60. fundur,  21. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[20:31]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Ákvæðin í þessari 40. gr. um gildistöku laganna og greinar þeirra eru mjög flókin. Þegar breytingartillögur voru lagðar fram um þá flóknu grein var mjög erfitt að skilja þær og ég skildi þær ekki fyrr en hv. þingmaður lýsti því yfir áðan að þetta væri einmitt vegna þeirra breytinga sem gerðar hefðu verið.

Ég er sammála þessu.