141. löggjafarþing — 60. fundur,  21. des. 2012.

tekjustofnar sveitarfélaga.

291. mál
[21:36]
Horfa

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er til að jafna, eins og nafnið gefur til kynna. Spurningin sem eftir stendur í mínum huga eftir meðferð þessa máls er hvers vegna ekki er fyrir löngu búið að leggja til þessa tímabæru sanngirnisaðgerð til jöfnunar af hálfu jöfnunarsjóðsins. Ég er stolt af því að þetta mál skuli nú loksins koma inn til Alþingis.

Ég segi já við þessu góða framfaramáli og hvet alla, framsóknarmenn jafnt sem aðra, [Hlátur í þingsal.] til að segja já við málinu.