141. löggjafarþing — 61. fundur, 22. des. 2012.
sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
151. mál
Virðulegi forseti. Ef ríkið hefur átt banka 100% og á í dag 13% er öllum ljóst að einhvern veginn hefur eignarhlutur ríkisins dregist saman um 87%, það liggur í hlutarins eðli. Einhver viðskipti, einhverjir samningar hljóta að hafa farið fram sem gerir það að verkum að í stað þess að ríkið eigi fjármálastofnun 100%, alfarið, á það núna algjöran minni hluta í bankastofnunum. Hvernig má það vera að ekki hafi farið fram einhverjar viðskiptaviðræður á milli aðila um breytinguna á þeim eignarhlut?