141. löggjafarþing — 61. fundur,  22. des. 2012.

vörugjöld og tollalög.

473. mál
[00:38]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þessar breytingartillögur eru til góða, eins og hv. formaður fór hér yfir. Það veitir kannski ekki af að hækka þessar fjárhæðir, sérstaklega í ljósi þess að nú verður lögleitt nýtt efni sem verður þvílíkt verðmætt að annað eins hefur ekki sést. Það er sjálft sætuefnið, en gjaldið á því verður 42 þús. kr. kílóið. Það er gert sérstaklega til einföldunar á þessu kerfi. Hver sá sem getur útskýrt það fyrir okkur geri það við gott tækifæri.

Þetta er hins vegar bara ágætismál og við þökkum hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir að koma með það. Þetta er í anda jólanna og við segjum já við þessu, virðulegi forseti. [Hlátur í þingsal.]