141. löggjafarþing — 61. fundur,  22. des. 2012.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 101/2012 um breytingu á bókun 31 við EES-samninginn.

97. mál
[01:00]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Það er komið að því í dagskrá þessa þingfundar að teknar eru fyrir nokkrar þingsályktunartillögur sem hæstv. utanríkisráðherra hefur lagt fram og varða EES-samninginn. Þessi tillaga sem er á þskj. 701 er þingsályktunartillaga um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á bókun nr. 31 við EES-samninginn. Hún fjallar um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins.

Markmið þeirrar tilskipunar sem um ræðir er að setja upp ferla við ákvörðun á því hvort mannvirki teljist til mikilvægra samfélagsinnviða og setja fram samræmda nálgun á því hvernig mikilvægir samfélagsinnviðir verði best verndaðir, í þeim tilgangi að varðveita öryggi borgaranna.

Eins og ég gat um er hér um að ræða hluta af bókun nr. 31 við EES-samninginn. Það hefur komið fram í vinnu utanríkismálanefndar að þátttaka í þessu samstarfi getur komið að gagni fyrir íslensk stjórnvöld, varðandi verklag og vinnuaðferðir um vernd ómissandi innviða á ýmsum sviðum. Í samræmi við ákvæði almannavarnalaga og ályktanir almannavarna og öryggismálaráðs verður unnið að gerð hættumats, könnun á áfallaþoli og gerð viðbragðsáætlana sem miða að vernd ómissandi innviða.

Ég ætla, frú forseti, ekki að hafa mörg orð um þessa tillögu en get þess þó, og það kemur fram í þingskjalinu, breytingu á orðunum „þýðingarmikil grunnvirki“ í tillögutextanum sjálfum og að það breytist í „grunnviði“.

Ég vil líka geta þess að framsögumaður nefndarinnar í þessu máli var hv. þm. Bjarni Benediktsson, en hann og hv. þm. Árni Páll Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins í nefndinni.

Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, formaður, Ásmundur Einar Daðason, Gunnar Bragi Sveinsson, Helgi Hjörvar, Jón Bjarnason, Mörður Árnason og Ragnheiður E. Árnadóttir.