141. löggjafarþing — 61. fundur, 22. des. 2012.
beiðni um skýrslu.
Hv. þm. Pétur H. Blöndal hefur óskað eftir því við forseta að hlutast verði til um það af hálfu Alþingis að skýrsla fjármálaráðherra samkvæmt beiðni þingmannsins, um stöðu gjaldeyrismarkaðar og greiðslumiðlunar við útlönd frá 1. október 2008 til 31. janúar 2009, komi fram hið fyrsta, enda er tími til að vinna skýrsluna útrunninn samkvæmt þingsköpum. Forseti mun leitast við að verða við beiðni þingmannsins.