141. löggjafarþing — 62. fundur,  22. des. 2012.

þingfrestun.

[03:04]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

„Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra og forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar gjöra kunnugt:

Að vér, að tilskildu samþykki Alþingis, veitum forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 141. löggjafarþings, frá 21. desember 2012 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 14. janúar 2013.

Gjört í Reykjavík, 20. desember 2012.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Markús Sigurbjörnsson. Ásta R. Jóhannesdóttir.

___________________

Jóhanna Sigurðardóttir.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 141. löggjafarþings, er frestað.

Ég þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir störf sín í þágu lands og þjóðar og óska þeim svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.