141. löggjafarþing — 63. fundur,  14. jan. 2013.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[11:48]
Horfa

Þór Saari (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ef grannt er skoðað sést skýrt að efnahagsleg og samfélagsleg áhrif af virkjunum í Skaftárhreppi eru engin, í mesta falli 15 milljónir á ári í fasteignagjöld til sveitarfélagsins sem á ekki í miklum vandræðum ef hægt er að rétta það af með 15 milljónum. Það eru rétt rúmlega árslaun eins þingmanns.

Það hefur ekkert valdið eins miklum deilum [Kliður í þingsal.] í þessu litla sveitarfélagi og þeir peningalegu og pólitísku lukkuriddarar sem komu inn á þetta svæði til að slá um sig á atkvæðaveiðum og reyna að koma í gegn einhverjum virkjunaráformum sem eru algjörlega út í hött. Það er engin landslagsheild á landinu eins falleg og heildstæð og svæðið frá Torfajökli og meðfram öllum suðurenda Vatnajökuls. Það er algjörlega óábyrgt af hv. þingmönnum og sveitarstjórninni að halda fram slíkri sundrungu í svona sveitarfélagi. Ábyrgð stjórnmálamanna og yfirvalda er mikil þegar kemur að samfélögum (Forseti hringir.) og þeir eiga ekki að beita sér fyrir því að sundra þeim bara til þess að ná fram hagsmunum einhverra einstakra fyrirtækja.