141. löggjafarþing — 64. fundur,  14. jan. 2013.

framgangur ESB-viðræðna.

[15:02]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. Það er ekki annað hægt en að bera það upp við hæstv. utanríkisráðherra hvers vegna hann lýsir yfir svo mikilli ánægju með að viðræðuferlið við Evrópusambandið skuli nú hafa verið sett í sérstakan hægagang af ríkisstjórninni. Hvers vegna lýsir hann því sem mikilli skynsemi og að við þessu hafi mátt búast í ljósi þess hversu mjög ríkisstjórnin hefur sett þetta mál á oddinn allt þetta kjörtímabil? Einnig tóku stjórnarliðar illa í þá hugmynd sem við höfum talað fyrir undanfarin missiri, að það væri skynsamlegt að setja málið á ís og halda því ekki áfram fyrr en að aflokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvað er það sem hefur breyst? Hvers vegna setur ríkisstjórn sem trúir á málstaðinn, trúir á verkefnið og vill ná samningum við Evrópusambandið ferlið í hægagang jafnvel þótt það séu kosningar? Hafa menn misst kjarkinn? Eða er það ekki bara það sem við öllum blasir, að það er engin samstaða í ríkisstjórninni um málið, engin eining meðal stjórnarflokkanna í þessu máli? Er það ekki vegna þess að menn eru í raun og veru búnir að vera með málið í hægagangi lengi enda blasir við öllum að Ísland hefur verið langlengst allra EFTA-ríkja að ná samningum við Evrópusambandið um niðurstöðu í aðildarviðræðum? Er þá ekki rétt, í stað þess að breiða yfir þá staðreynd með fagnaðarópum, að ræða málið eins og það er, tala til fólksins í landinu og á þingi um málið eins og það raunverulega er og upplýsa menn um að það sé mikill ágreiningur á milli stjórnarflokkana og í raun engin samstaða um það hvað eigi að gera næst eða hvernig eigi að halda á málinu? Annar stjórnarflokkurinn er kominn þannig upp við vegg vegna þess að það eru kosningar fram undan að hann biður um frí og Samfylkingin veitir það gegn því að gerðar séu breytingar í utanríkismálanefnd.