141. löggjafarþing — 64. fundur,  14. jan. 2013.

stefna ríkisstjórnarinnar í ESB-viðræðunum.

[15:10]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Hægagangur í viðræðum við Evrópusambandið um aðild Íslands að bandalaginu er engin niðurstaða í því máli. Það er ekki mín framtíðarsýn að við verðum næstu ár eða áratugi í viðræðum við Evrópusambandið um þetta efni.

Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að ég hef talað fyrir því innan stjórnarmeirihlutans að við beindum þessu í annan farveg. Ég hefði viljað fá atkvæðagreiðslu um það hvort Íslendingar vildu stefna að aðild við Evrópusambandið á grundvelli þeirra upplýsinga sem þegar liggja fyrir. Þetta er sú afstaða sem ég hef rekið áróður fyrir innan stjórnarmeirihlutans og gert það á þingi, í ríkisstjórn og opinberri fjölmiðlaumræðu. Það hefur ekki orðið niðurstaðan. Nú er það niðurstaða í ríkisstjórninni að viðræðumál skuli sett í annan gír og annan farveg. Það er niðurstaða sem við erum ásátt um að verði.

En ég ítreka að öllum á að vera ljóst hver mín afstaða hefur verið í þessu máli. Hún hefur verið alveg skýr og hún hefur verið „konsekvent“ og ég hef fylgt henni en þetta er núna niðurstaða ríkisstjórnarinnar. Ég er síðan á því að við lok þessa kjörtímabils verði afdráttarlaus kaflaskil í þessu máli og mín skoðun er sú að ekki eigi að taka upp viðræðuferlið að nýju nema að aflokinni þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem fengin hefur verið afstaða þjóðarinnar til þess í hvaða farveg hún vill setja þessi mál.