viðbrögð lögreglu við ásökunum um barnaníð.
Hæstv. forseti. Ég mun taka til skoðunar þá hvatningu sem kom frá hv. þingmanni um upplýsingar til þingsins. Hann vék að ýmsum skyldum málum en ekki öllum mjög nátengdum.
Í fyrsta lagi vil ég segja að ég tek undir með hv. þingmanni um að hér er um grafalvarleg mál að ræða og þeir sem verða fyrir barðinu á kynferðisofbeldi á öllum aldri, ekki síst á unga aldri, hljóta af mikinn skaða.
Í öðru lagi vil ég segja varðandi þann varnarbúnað sem lögreglan hefur óskað eftir, sem er kannski óskylt mál, að við þurfum að búa vel að lögreglunni hvað þetta snertir svo hún sé vel varin í sínu erfiða starfi.
Varðandi fjölgun lögreglumanna tek ég undir að nauðsynlegt er að gera það. Lögreglan hefur þurft að sæta miklum niðurskurði á undanförnum árum. Við fengum skýrslu þess efnis, og hún hefur verið rædd hér í sölum Alþingis, að niðurskurðurinn nemi tæplega þremur milljörðum króna að raungildi þannig að það kemur einhvers staðar niður. Við þurfum að sjálfsögðu að efla lögregluna og við þurfum að skoða þau úrræði sem hún hefur og hvernig þeim hafi verið (Forseti hringir.) beitt áður en við ráðumst í breytingar á lögum til að skapa fleiri slík úrræði.