141. löggjafarþing — 64. fundur,  14. jan. 2013.

málstefna í sveitarfélögum.

74. mál
[15:39]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður beinir til mín spurningum. Hann spyr hvaða sveitarfélög hafi nú þegar sett sér málstefnu og vísar í lög þar að lútandi.

Því er til að svara að með bréfi, dagsettu 21. september 2012, var fyrirspurn hv. þingmanns kynnt öllum sveitarfélögum landsins og óskað var eftir upplýsingum um hvort sveitarfélög hefðu sett sér málstefnu í samræmi við 130. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Alls bárust svör frá 24 af 75 sveitarfélögum. Ekkert þeirra sveitarfélaga sem svöruðu erindi ráðuneytisins hefur sett sér málstefnu í samræmi við 1. mgr. 130 gr. laganna en í nokkrum tilvikum kom fram að framkvæmdastjóra sveitarfélags hefði verið falið að vinna að málstefnu fyrir sveitarfélagið.

Með nýjum sveitarstjórnarlögum þurfa sveitarstjórnir að huga að ýmsum þáttum í rekstri og störfum til að innleiða fyllilega margvísleg ný ákvæði sveitarstjórnarlaganna. Má þar nefna aðlögun rekstrar að nýjum fjármálareglum, setningu siðareglna, gerð nýrra samþykkta fyrir sveitarfélagið og endurskoðun samninga um samstarfsverkefni. Innleiðing laganna mun óhjákvæmilega taka nokkurn tíma. Þau hafa sem sagt ekki gengið frá málstefnu en í einhverjum tilvikum er sú vinna hafin sem betur fer.

Í öðru lagi spyr hv. þingmaður hvort ráðuneytið hafi vakið athygli forustumanna í sveitarfélögum á þeirri lagaskyldu, gefið út leiðbeiningar um stefnumótunina, boðið fram aðstoð sína við undirbúning stefnumótunar, haft samband við Íslenska málnefnd eða málnefnd um íslenskt táknmál um þetta efni, eða beitt sér með öðrum hætti fyrir því að íslenskum sveitarfélögum verði mótuð málstefna.

Í lögunum er sveitarstjórn falið að móta sveitarfélaginu málstefnu í samráði við Íslenska málnefnd og eftir atvikum málnefnd um íslenskt táknmál. Lagagreinin gerir í sjálfu sér ekki ráð fyrir íhlutun innanríkisráðuneytisins í verkefnið svo sem með staðfestingu þess á stefnunni. Ráðuneytið gegnir hins vegar almennu eftirliti með því að sveitarfélög gegni skyldum sínum samkvæmt sveitarstjórnarlögum og öðrum löglegum fyrirmælum samanber 109. gr. sveitarstjórnarlaga. Ráðuneytið metur í hverju tilviki fyrir sig hvort og þá með hvaða hætti tilefni er til afskipta á grundvelli þessa lagaákvæðis.

Ég lít svo á að umrætt bréf sem ég vitnaði til í upphafi máls míns frá 21. september síðastliðinn hafi verið liður í því að minna sveitarstjórnir á þá skyldu sem kveðið er á um í 130. gr. sveitarstjórnarlaganna. Ég vék einnig að því í upphafi míns máls að sveitarstjórnir eru að vinna að ýmsum þáttum sem tengjast framkvæmd nýrra sveitarstjórnarlaga. Ég geri ráð fyrir því að þetta verði þar ofarlega á baugi. Ég vænti þess og vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu verðuga og lögskylda verkefni.