141. löggjafarþing — 65. fundur,  15. jan. 2013.

störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Meðal helstu umræðuefna í dag er að ríkisstjórnin ákvað í gær að hægja á aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Menn hafa á því misjafnar skoðanir.

Hvers vegna er það gert? Er það vegna þess að ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir lesa þannig í umræðuna í landinu, og Evrópu almennt, að til þess sé ástæða? Ég vildi óska að það væri ástæðan en svo er ekki.

Ástæðan er heimatilbúinn vandi ríkisstjórnarinnar sem hefur leitt þetta mál frá 16. júlí 2009 fram til dagsins í dag í ósátt innan þeirra tveggja flokka sem ráða ríkisstjórn Íslands. Það er þannig og þess vegna er vandinn heimatilbúinn, m.a. í hv. þm. Jóni Bjarnasyni sem hefur haft uppi sínar aðferðir við að koma í veg fyrir að aðildarviðræðurnar gengju eins og þær áttu að ganga samkvæmt því sem þingið samþykkti 16. júlí 2009.

Þess vegna er vandinn heimatilbúinn vandi ríkisstjórnarinnar. Það er dapurlegt að við skulum verða vitni að því á síðustu mánuðum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að flokkarnir falli frá stærstu málum sínum til þess eins að halda völdum í ríkisstjórn. Þetta er óboðlegt fyrir íslensk stjórnmál.