náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það sem menn hafa áhyggjur af hjá sveitarfélögum með þann kostnaðarauka sem þar gæti hlotist er að hugsanlega þyrfti að ráða fleiri starfsmenn. Þar er talað um sveitarfélög í fleirtölu. Nú er töluvert samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga í gegnum náttúrustofurnar. Hefur það verið skoðað í ráðuneytinu hvort hægt væri að nýta starfskraftana þar til að styðja við og bakka upp nefndirnar meðan menn eru að feta þetta einstigi með þann kostnað og þá auknu vinnu sem flyst yfir á sveitarfélögin? Það væri að minnsta kosti þess virði að fara yfir það.
Við erum öll sammála um að við viljum vernda náttúruna og koma í veg fyrir að menn keyri þvers og kruss um mela og móa sem ekki er æskilegt að gera. Hefur hæstv. ráðherra eða ráðuneytið rætt við slysavarnafélög? Ég þekki af mínu heimasvæði að það væri æskilegt að sumir vegslóðar þar væru til dæmis opnir fyrir slysavarnafélögin með einum eða öðrum hætti ef bregðast þyrfti við, sérstaklega ef það verða sjóslys.
Ég hvet hæstv. ráðherra til að skoða það. Þessu væri þá auðvitað lokað fyrir allri annarri umferð, en hægt að bregðast við ef vá væri fyrir dyrum. Ég vildi heyra skoðun hæstv. ráðherra á því.
Telur hún þetta koma til greina, annars vegar að samnýta þá starfskrafta og starfsstöðvar sem eru í náttúrustofunum víðs vegar um landið og hins vegar að slysavarnafélögin gætu haft aðgang að einhverjum slóðum sem væru lokaðir allri annarri umferð?