141. löggjafarþing — 65. fundur,  15. jan. 2013.

náttúruvernd.

429. mál
[14:45]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við hæstv. ráðherra áttum ágæt orðaskipti í andsvörum. Mér fannst ég greina mikinn sátta- og samvinnutón og vona og veit að það veit á gott. Hér er um stórt mál að ræða og eins og kom fram í orðaskiptum okkar hef ég áhyggjur af ákveðnum þáttum máls. Ég held að það skipti máli þegar við ræðum þetta grundvallaratriði um almannaréttinn, um för fólks um landið. Þá er lykilatriði, eins og hæstv. ráðherra sagði, að það fólk sem nýtir landið, fer um það, m.a. á jeppum. Ástæðan fyrir jeppaumferð er sú að fólk getur ekki farið á öðrum bílum. Ef maður reynir það má maður þakka fyrir að lenda ekki í vandræðum. Við þurfum að taka tillit til þess og ég tel eðlilegt að túlka almannaréttinn með þeim hætti. Ef við gerum það ekki skulu menn algjörlega vera meðvitaðir um að verið er að útiloka stóran hóp þjóðarinnar frá því að njóta landsins eins og verið hefur á undanförnum áratugum. Þá er kannski líka verið að útiloka þá sem síst skyldi. Þeir einstaklingar sem eiga ekki möguleika á að fara um landið eru einkum fatlaðir, ung börn og sömuleiðis eldra fólk. Menn ættu að vera sér meðvitaðir um að ef þeir ætla að hafa þá túlkun eru menn meðvitað og með opin augu að útiloka þessa hópa frá því að njóta landsins. Það er óhjákvæmilegt.

Hæstv. ráðherra sagði að það fólk sem ferðast um landið kallaði eftir skýrum reglum. Það er að langstærstum hluta náttúruverndarsinnar þó að auðvitað séu undantekningar alls staðar. Þá skiptir ekki máli hvernig fólk fer um landið, keyrandi, gangandi eða hjólandi. Það eru svartir sauðir alls staðar. Það er ekki svo gott að við getum flokkað fólk eftir ferðamátum. Reglurnar eru hluti af svokölluðum kortagrunni. Mér finnst vanta í þessa vinnu ákveðinn skilning á einum ferðamátanum. Eins og ég vísaði til hafa menn kvartað undan því að hann vantaði í þessa umræðu.

Við þurfum að vera meðvituð um að ef á að búa til kortagrunn sem á að hafa alla þá slóða sem eru til á landinu og hafa verið notaðir þarf það að vera afskaplega lifandi kortagrunnur. Samkvæmt þessum reglum er ekki hægt að nálgast þetta með öðrum hætti en á netinu. Mér skilst að Landmælingum sem eiga að halda utan um kortagrunninn sé bannað að prenta út viðkomandi kort, þ.e. gefa það út á pappír. Ég veit ekki hversu hátt hlutfall af þjóðinni ferðast um hálendið, það eru ekki allir og kannski er umræðan svolítið sérkennileg. Það gæti verið hugmynd að taka á því en það er ekki heimilt samkvæmt náttúruverndarlögum að leita að öruggu vaði yfir jökulsár svo dæmi sé tekið. Það skiptir máli því að það er í rauninni bannað samkvæmt núgildandi lögum að komast inn í Húsadal eða Langadal í Þórsmörk án þess að stunda ólöglegan utanvegaakstur.

Einhver kynni að segja: Þetta eru náttúrlega kjánaleg lög, ekki erum við að fara fram á það við ferðamenn að þeir kanni ekki vaðið áður en þeir leggja í ána. Ég held að enginn ætlist til þess, en þetta er dæmi um lög sem ganga ekki upp. Krossá breytir sér stöðugt og vaðið er ekki endilega það sama frá degi til dags.

Á sama hátt eyðir óblíð náttúra landsins ummerkjum vega á hverju ári eða jafnvel oft á ári. Dæmi um slíkt má nefna Flæðurnar á Gæsavatnsleið, sem hverfa jafnvel milli daga, og sandana við Öskjusvæðið. Hvernig á góður kortagrunnur að fylgja þessu eftir? Ætli við þyrftum þá ekki að hafa vaktmann samfellt á hálendinu sem kæmi á framfæri upplýsingum um það hvað væri að gerast á milli daga?

Við erum líka eins og ég vísaði í að breyta þeirri lagahefð sem hefur verið þannig á Íslandi að við megum gera hvað sem er nema það sé sérstaklega bannað. Í þessu tilfelli snúum við því við. Ríkisstofnun er með kortagrunn sem hún getur breytt einhliða þegar hún vill. Það er ekki eins og það séu ekki deilur um þessar þúsundir vegslóða um hálendið. Viðkomandi stofnun er falið alræðisvald sem gerir það að verkum að ef hún ákveður að taka út einhverja slóða af einhverjum ástæðum er orðið ólöglegt að gera eitthvað sem hefur verið talið eðlilegt, og það hefur fólk kannski gert lengi. Ef einhver sem hlustar segir að verið sé að draga upp óþarflega dökka mynd getum við alveg farið í nútímann og tekið deilur um Vonarskarðið og Vikrafellsleiðina. Það hefur verið mjög áhugavert að fylgjast með orðaskiptum um þau svæði, t.d. á milli embættismanna og opinberra stofnana annars vegar og hins vegar þeirra aðila sem gerst þekkja til, náttúruverndarsinna sem nýta landið. Við sjáum alveg að þar er himinn og haf á milli sjónarmiða.

Ég gríp niður í 22. og 23. gr. frumvarpsins, þar er verið að flokka tjöld í göngutjöld og hefðbundin viðlegutjöld. Það má tjalda göngutjöldum utan alfaraleiða og hefðbundnum viðlegutjöldum við alfaraleiðir þannig að það er spurning hvort menn þurfa núna að fara með tvö tjöld, göngutjald og viðlegutjald, þegar þeir ferðast um landið. Það má vel vera. Svo er náttúrlega spurningin í hvaða vandræðum menn eru ef þeir fara með jöklatjaldið sitt. Viðkomandi gæti jafnvel orðið síbrotamaður ef hann reyndi eitthvað að koma því niður. Ég held að — (Utanrrh.: Þingmaðurinn …) Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Ég mundi ætla að það væri samstaða um það þegar menn skoða þetta, að þetta gangi ekki upp. Menn gætu komið í veg fyrir þetta ef menn hefðu hlustað betur á athugasemdir þeirra sem hafa sent inn eða hafa á þessu skoðanir og þekkja þessa hluti.

Ég verð að viðurkenna að ég er að velta fyrir mér 46. gr., um óbyggð víðerni. Þar er vísað til þess að komandi kynslóðir geti notið þar einveru og náttúrunnar án truflunar af mannvirkjum eða umferð vélknúinna farartækja. Ég hef heyrt um allra handa réttindi en ég man ekki eftir réttinum til að njóta einveru. Þó að það sé ekki mikil umferð um hálendið getur maður hitt fólk þar og ég veit ekki hvað gerist ef maður ætlar að nýta rétt sinn til einveru. Kannski kemur svo bara hæstv. utanríkisráðherra gangandi með bakpokann sinn. Er hann þá að brjóta rétt minn til lögbundinnar einveru? (Utanrrh.: Það gæti vel gerst.) Ég mundi aldrei nýta þann rétt ef hæstv. utanríkisráðherra mætti, ég yrði bara glaður að sjá hann þannig að þetta var ekki gott dæmi. (Gripið fram í: Þetta var mjög vont dæmi.) Mjög vont dæmi, en ég veit hins vegar ekki hvort rétturinn til að njóta einveru bjóði upp á einhverja hættu á einhverjum reglum sem munu setja sérkennilega mynd á lög og reglur um náttúruvernd.

Hér erum við svo sannarlega ekki að fara úr þeim sið, sem kannski flestir mundu kalla ósið, sem felst í því að við erum að fela framkvæmdarvaldinu mjög miklar heimildir til reglugerðarsmíða. Ég er ekki búinn að fara í gegnum þennan lagabálk og telja saman allar reglugerðarheimildirnar sem hæstv. ráðherra fær en það segir sig sjálft þegar menn skoða til dæmis akstur utan vega í 31. gr. að ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, takmarkað eða bannað akstur á jöklum og frosinni og snævi þakinni jörð þar sem hætta er á náttúruspjöllum eða óþægindum fyrir aðra sem þar eru á ferð. Hér erum við til dæmis að opna á alveg gríðarlega heimild fyrir ráðherra. (Gripið fram í.) (Umhvrh.: Þetta er eins.) Hæstv. ráðherra segir að þetta sé eins og er í lögunum núna. Þá breytir það sem sagt eðli málsins ekki neitt, það breytir engu um eðli máls. Ég hélt að við værum í því að breyta lögum til að bæta þau og trúi að svo sé.

Það eru sambærilegar reglugerðarheimildir í lögum um kortagrunn í 32. gr. og mjög mörgum lagagreinum þarna. Ég teldi mjög skynsamlegt af hv. umhverfisnefnd að fara líka yfir þann þátt málsins, hvort við gætum ekki fækkað þeim. Það er í mjög mörgum tilfellum — og svo ég skammi ekkert sérstaklega þessa hæstv. ríkisstjórn tek ég fram að það er ekkert fundið upp af henni, það var ekki hún sem fann það upp að vera með óformlegar reglugerðarheimildir fyrir framkvæmdarvaldið. Ég held því ekki fram. Ég er bara að segja að þegar við förum í umfangsmiklar breytingar eða breytingar yfir höfuð held ég að við ættum að hafa það sjónarmið að halda reglugerðarheimildum í algjöru lágmarki.

Ég tek aftur undir það að ég er ánægður að heyra þennan sáttatón sem ég heyrði hjá hæstv. ráðherra vegna þess að ég held að Íslendingar séu 98–99% sammála þegar kemur að þessum málaflokki. Það eru hins vegar og hafa verið nokkrar deilur að undanförnu og það er ekki gott. Hér erum við með nokkuð í höndunum sem hægt er að snurfusa. Ef tekið verður á þeim málum sem ég nefndi og örugglega einhverjum fleiri og farið betur yfir er ég sannfærður um að við getum náð sátt um þessa hluti sem allir geta vel við unað. Það er til mikils unnið að hafa sátt í þessum málaflokki. Ég hef áhyggjur af því almennt að við nálgumst þennan mikilvæga málaflokk þannig að það er vantraust á aðilum sem er ekki ástæða til að vantreysta. Menn fara þar af leiðandi í boð og bönn sem eru bæði óþörf og oft skaðleg og taka hvorki á kjarna máls né vandanum.

Ég hef nefnt hér að miðað við ferðir mínar um hálendið sýnist mér til dæmis að hjólför sem eru utan vegslóða séu fyrst og fremst hjá — maður getur bara séð að það eru ekki breiðu dekkin, væntanlega eru þetta litlir jeppar, bílaleigubílar. Með kennslu og fræðslu fyrir þessa góðu erlendu gesti væri örugglega hægt að koma í veg fyrir mörg þessara slysa. En þá verðum við líka að setja áhersluna þar og á ýmislegt annað þar sem augljóslega er misfarið með í stað þess að taka það fólk sem hefur notað landið, er náttúruverndarsinnar og að stærstum hluta til til mikillar fyrirmyndar og gera því erfiðara fyrir.