141. löggjafarþing — 65. fundur,  15. jan. 2013.

almenn hegningarlög.

478. mál
[16:30]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil segja að sú reynsla sem við í allsherjar- og menntamálanefnd höfum af samstarfi við fangelsisyfirvöld, og við höfum kynnt okkur starfsemi fangelsistofnana í gegnum árin allt frá því að ég byrjaði á þingi 1999, sýnir að gríðarlega merkilegt starf er að unnið þar, ekki síst undir forustu Margrétar Frímannsdóttur á Litla-Hrauni þar sem hún hefur beitt sér af miklum krafti fyrir aukinni menntun fyrir fanga bæði á framhaldsskólastigi og á háskólastigi, sem veitir föngunum betra tækifæri til að verða betri borgarar þegar þeir koma út. Það á að vera krafa okkar sem hér erum inni að fangelsin séu ákveðin betrunarvist. Menn eiga að koma út sem betri menn og þá verða fangelsin og um leið þeir sem eru í forsvari þar, eins og Margrét Frímannsdóttir og fleiri, að fá stuðning stjórnvalda til þess. Ég veit að hæstv. ráðherra hefur sýnt þann vilja í verki.

Aðeins varðandi virku tálbeiturnar þá skil ég hæstv. ráðherra mjög vel að vilja fara varlega í að gefa svar varðandi þær. Ég er líka mjög tvístígandi þar. Við þurfum að kynna okkur það betur, bæði hvað hin Norðurlöndin eru að gera í þeim efnum sem við erum í mikilli samvinnu við, ekki bara lagalega heldur líka út frá löggæslunni o.fl., þannig að við þurfum að stíga þar líka varlega til jarðar. Það má samt ekki verða það að við útilokum þennan möguleika vegna þess að netið hefur breytt svo miklu, og eins og kom fram á fundi nefndarinnar hefur aðgengi þeirra sem ætla sér að ná til barna með allt öðrum hætti í dag en það var fyrir 30 árum. Við verðum að ræða hvaða leiðir eru bestar fyrir okkur sem tilheyrum kerfinu, reyna að ná til þeirra áður en brotin eiga sér stað, því að hvert einasta barn sem við björgum eða þeir sem byggja upp kerfið er þess virði. Það er þess virði að skoða gaumgæfilega alla fleti málsins og ekki útiloka eitt eða neitt. Ef ég skildi hæstv. innanríkisráðherra rétt vildi hann ekki útiloka neitt (Forseti hringir.) en lagði áherslu á að við færum varlega í þessum efnum.