landslénið .is.
Hæstv. forseti. Svo að það sé alveg skýrt: Póst og fjarskiptastofnun er ekki að yfirtaka ISNIC, ISNIC verður áfram rekið sem sjálfstætt fyrirtæki. (BirgJ: Með þá þekkingu?) Já, já, með þá þekkingu sem þar er innan búðar. Við getum hins vegar aldrei búið þannig um það í lögum að þeir einstaklingar sem starfandi eru í fyrirtækjum, hvort sem þau eru á opnum markaði eða í samfélagseigu verði þar starfandi um alla framtíð, en fyrirtækið verður áfram rekið sem slíkt.
Ég skoðaði þessar tvær leiðir, að reyna að ná eignarhaldi á fyrirtækinu aftur til ríkisins eða að fara þessa leið og hún varð fyrir valinu af fjárhagsaðstæðum. Þá hef ég einhent mér í það af mikilli einlægni að búa svo um hnútana að fyrirtækinu geti vegnað vel á markaði. Fyrirtækið getur eftir sem áður skilað eigendum sínum arði, það mun geta gert það alveg eins og önnur fyrirtæki á markaði. En á sama hátt og vatnsveitur t.d. eiga samkvæmt íslenskum lögum ekki að geta skilað arði út í hið óendanlega er horft til hófsemi í þessu efni líka. Ég hef heyrt þær raddir frá starfsmönnum innan ISNIC að þannig vilji menn gjarnan hafa það, alla vega ýmsir starfsmenn. Þeir vilja öruggt rekstrarumhverfi, þeir vilja að starfsvettvangi þeirra séu búin góð skilyrði og forðast allt óhóf. Við erum að gera nákvæmlega það, að reyna að láta ríma saman samfélagslega hagsmuni og hagsmuni þessa fyrirtækis.