úthlutun aflamarks í ýsu á þessu fiskveiðiári.
Frú forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Ásbirni Óttarssyni, fyrir að taka þetta mál hér upp og tek undir með þeim sem hafa tjáð sig um að það sé gríðarlega mikilvægt að tekið sé á þessu og fundin viðunandi lausn.
Mig langar að vitna í grein eftir Örn Pálsson sem birtist 4. janúar í Fiskifréttum. Þar fjallar hann um þessi mál og segir meðal annars, með leyfi frú forseta:
„Í dag er staðan sú að þrátt fyrir að nánast enginn skipstjóri krókaaflamarksbáts hafi leyft sér að fara í ýsuróður heldur líti á ýsuna sem meðafla með þorskinum hefur þessi bátaflokkur veitt þrjá fjórðu þeirra heimilda sem honum var úthlutað í upphafi fiskveiðiársins.“
Ég held að það þurfi ekki meira en þessa málsgrein til að lýsa þeim vanda sem uppi er í málinu. Þarna er um mikið byggðamál að ræða. Þarna er ekki hvað síst, eins og kom meðal annars fram í tilvitnun hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar áðan, vitnað til byggða sem eru í mikilli vörn. Ég hvet hæstv. ráðherra eins og aðrir sem hafa talað hér til að hraða vinnu við þetta mál, skoða það ofan í grunninn og leita allra leiða til að bregðast við.
Ég held að það sé líka full ástæða til, eins og komið hefur fram í umræðunni, að velta því aðeins upp hvort ekki sé óhætt að vega inn sjónarmið sjómanna sem stangast svona mikið á við sjónarmið Hafrannsóknastofnunar í þessu máli. Einhvern tímann hefur maður í þessum sal heyrt menn tala fyrir því að við eigum í auknum mæli að taka reynslu sjómanna, þeirra sem eru að fiska og eru á miðunum, inn í þessa vinnu. Ég hvet hæstv. ráðherra til að gera það þegar hann skoðar þetta mál.