úthlutun aflamarks í ýsu á þessu fiskveiðiári.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem farið hefur fram. Það sem blasir við manni í lok umræðunnar er að við erum í raun í sömu sporum og áður. Hæstv. ráðherra benti réttilega á að þorskstofninn yrði í hámarki að mati Hafrannsóknarstofnunar á sama tíma og ýsustofninn væri í lágmarki. Það er vandamálið í hnotskurn. Því var akkúrat öfugt farið fyrir fimm árum. Þá var allt of mikið af þorski á slóðunum miðað við ýsuveiðina. Því miður erum við enn í sömu sporunum og ég tel mjög mikilvægt að við breytum um kúrs í málinu og metum og förum yfir þær aðferðir sem við notum við stofnmælingarnar. Það er gríðarlega mikilvægt því að þetta getur ekki gengið svona.
Við sjáum afleiðingarnar sem blasa við okkur hvar sem er um landið, það er misjafnt eftir útgerðarflokkum og misjafnt eftir byggðarlögum, það er alveg hárrétt, en því miður mun vandamálið ekki fara frá okkur. Ég fagna því að hæstv. ráðherra vill leita úrlausna á málinu og hvet ég hann til að halda áfram á þeirri vegferð sem hann lýsti í svari sínu, þ.e. að ræða við hagsmunasamtök um hvernig mætti bregðast við vandamálinu, það er gríðarlega mikilvægt. Aðalatriðið er þó það að við þurfum að komast upp úr því fari sem við höfum verið í, að einblína á tölurnar sem eru að mínu mati rangar vegna þess að stofnmælingin er röng. Ég færði fyrir því rök áðan að eftir að búið var að veiða 32% umfram ráðgjöf er bætt við 83%. Það er engin heilbrigð skynsemi í því, það er ekkert samhengi í hlutunum. Þess vegna verðum við að fara yfir málið gagnrýnum hætti til þess að við getum fjallað um það á eðlilegum nótum.
Það er niðurstaða mín eftir umræðuna að það sé mikilvægasta verkefnið fram undan því að annars mun vandamálið bara stækka. Ýsustofninn er í lágmarki að mati Hafrannsóknastofnunar, þorskstofninn er í hámarki á sama tíma og veiðin á miðunum er ekki í samræmi við það, því miður.