stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Varðandi fyrra atriðið þarf að huga vel að því áður en menn hverfa frá 15 bróttótonnamælingunni í 15 metra því að við vitum að hægt er að gera 15 metra langt skip býsna stórt ef það er haft breitt og myndarlegt. Ég held að menn þurfi að horfa til margra sjónarmiða í senn. Ég geri að sjálfsögðu ekki lítið úr því að kröfur um góðan búnað og vinnuaðstöðu eru að sjálfsögðu til staðar, sérstaklega í þeim tilvikum þegar menn hafa safnað mjög miklum veiðiheimildum á ekki stærri skip en þarna eiga í hlut. Á móti koma þau sjónarmið sem mér finnst ekki mega týnast að það er ekki endilega markmiðið eða æskilegt að óhófleg samþjöppun veiðiheimilda verði í þessu kerfi frekar en öðrum. Það er því að mörgu að hyggja í þessum efnum auk þess sem æskilegast væri að einhver sæmileg samstaða yrði um það og samráð við greinina og samtök þeirra sem í hlut eiga. Ef ég veit rétt hefur að yfirgnæfandi uppistöðu til verið samstaða um það innan Landssambands smábátaeigenda að varðveita þessi stærðarmörk. Ég fletti tillögum til ályktana fyrir landsþing þeirra í haust og sá ekki betur en að velflest aðildarfélögin ályktuðu í þá veru að standa bæri vörð um þessi 15 tonna stærðarmörk.
Varðandi seinna ákvæðið nefnir hv. þingmaður nokkuð sem við höfum haft vissar áhyggjur af. Það er sú staðreynd að borist hafa af því fréttir að einhverjir hafi ákveðið að slást í hópinn og stækka báta sína, jafnvel eftir að frumvarpið kom fram, og meini að hægt sé að láta á það reyna hvort þessi dagsetning haldi. Æskilegast hefði auðvitað verið að frumvarpið hefði verið afgreitt og orðið að lögum eins hratt og nokkur kostur var eftir að það kom fram, en því miður var það ekki þannig. Nú hefur skapast smátími sem er ekki til bóta. Ég ætla að tala varlega í þessum efnum ef á þetta kynni að reyna síðar meir og gefa mér ekkert fyrir fram í því. Ég bendi hv. þingnefnd á að skoða þetta vel. Það er alls ekki ætlunin að stór fjöldi manna fái einhver verðlaun (Forseti hringir.) í formi þess að veiðiheimildir þeirra verði verðmætari út á það sem menn hefðu kannski sæst á að gera til að leysa þetta eina tilvik sem þekkt var áður en frumvarpið kom fram. Það þarf að skoða hvort eigi jafnvel að fara einhverjar aðrar leiðir við að loka dæminu (Forseti hringir.) en þá sem hér er lögð til ef það kemur upp.