141. löggjafarþing — 66. fundur,  16. jan. 2013.

landslénið .is.

421. mál
[18:27]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Frumvarpið sem hér er til umræðu hefur, eins og áður hefur komið fram, komið til meðhöndlunar á Alþingi. Segja má að umhverfis- og samgöngunefnd hafi á síðasta þingi hafið lítillega umræðu um þetta en það vék þó fyrir öðrum verkefnum þegar leið á síðasta vor.

Frumvarpið vekur ýmsar spurningar eins og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson hefur farið allrækilega yfir og ætla ég ekki að bæta miklu við það. Ég verð þó að segja að miðað við þau kynni sem ég hafði af þessu frumvarpi á vettvangi umhverfis- og samgöngunefndar á síðasta ári velkjast enn fyrir mér spurningarnar: Hver eru markmið þessa þingmáls? Hverju á að ná fram? Er til staðar eitthvert vandamál sem á að leysa með þessu og hvert er það þá? Hvert er vandamálið sem á að leysa með þessari lagasetningu?

Mér hefur þótt skorta nokkuð á að það væri skýrt. Ég tek þessu máli þess vegna með allnokkrum fyrirvörum, m.a. á sömu forsendum og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson gerði í síðustu ræðu, og ætla ekki að endurtaka það sem hann sagði. Hins vegar mun ég sem nefndarmaður í umhverfis- og samgöngunefnd fylgja þessum spurningum eftir á þeim vettvangi.

Í grundvallaratriðum finnst mér frumvarpið og greinargerð með því ekki útskýra fullnægjandi hvaða vandamál það er sem ætlunin er að leysa, hvaða nauðsyn er fyrir þessari lagasetningu og svo rekur maður augun í ýmislegt sem vekur spurningar, eins og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson hefur rakið. Hvers vegna er talin þörf á sérstökum lénaskatti hér á landi þegar ekki er um að ræða sambærilega gjaldtöku í löndunum í kringum okkur?

Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, hæstv. forseti, en þetta er mál sem ég held að sé þörf á að fara vel yfir, ekki síst til þess að fá fram skýran og glöggan rökstuðning fyrir því hvaða vandamál á að leysa með þessari lagasetningu, hverju á að ná fram. Það að ekki séu til lög á einhverju sviði þarf ekki að vera vandamál í sjálfu sér ef sú starfsemi sem um er að ræða gengur ágætlega fyrir sig og er átakalaus.