141. löggjafarþing — 66. fundur,  16. jan. 2013.

landslénið .is.

421. mál
[18:38]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Hæstv. ráðherra kom inn á það sem ég kallaði eftir, þ.e. um mismunandi sýn hvers og eins á hlutina. Hæstv. ráðherra kallar 3,5% lénaskatt á þetta fyrirtæki hófsaman skatt. Ég hef aðra skoðun á því, mér finnst það ekki hófsamur skattur. Það er tífalt hærri skattur en önnur fjarskiptafyrirtæki borga. Eins og ég les frumvarpið og skil málið þá finnst mér mjög sérkennilegt að Póst- og fjarskiptastofnun geri alls konar kröfur til þessa fyrirtækis, jafnvel um aðskilnað í rekstri og annað, en síðan er ekki hægt að gera eðlilega kröfu til eftirlitsaðila, eins og í þessu tilfelli þar sem þetta er ekki gjald heldur skattur.

Hæstv. ráðherra segist gæta samfélagslegra hagsmuna. Það eru engar deilur um það, við viljum öll vel, við erum bara með mismunandi sýn á hvað er best að gera.

Eins og ég benti á hér áðan hefur gjaldið til notenda viðkomandi léna frá því á árinu 2000 lækkað um 65% að raungildi og lénaskatturinn færist auðvitað beint á notandann. Það gefur augaleið. Ég held að við séum sammála um það. Ef settur er skattur á fyrirtæki í svona starfsemi getur hann ekki farið neitt annað en á notandann. Það er ákveðin þversögn í því.

Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra því að hann kom ekki inn á það sem ég kallaði eftir í sambandi við tengslin við Ísland áður en maður fær skráð lén. Hæstv. ráðherra kom inn á að það væri hans skoðun að notandi þyrfti að vera orðinn lögráða áður en hann fengi skráð lén. Það getur vel verið að það sé eðlilegt og skynsamlegt, ég hef ekki myndað mér neina skoðun á því. Hefur hæstv. ráðherra það við höndina hve margir einstaklingar, ef nokkrir, hafa skráð lén en eru ekki orðnir lögráða?