141. löggjafarþing — 66. fundur,  16. jan. 2013.

landslénið .is.

421. mál
[18:59]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ber bara fulla virðingu fyrir skoðunum hæstv. ráðherra þó að okkur greini á um einstaka mál. Sérstaklega kannski ákveðin atriði í þessu frumvarpi sem hér er til umfjöllunar, en auðvitað ber maður virðingu fyrir skoðunum hæstv. ráðherra.

Það er eitt sem ég vildi koma aðeins inn á hér, sem ég gerði ekki í ræðu minni. Nú er búið að setja inn ákvæði um að ef til stendur að selja viðkomandi fyrirtæki að hluta eða öllu leyti þá hefur ríkið forkaupsrétt. Menn bregðast við því sem þeir hafa haft áhyggjur af, þegar fyrirtækið var einkavætt og það sem þá gerðist. Búið er að byggja fyrir það, ef breyting verður á því.

Lénunum hefur auðvitað fjölgað og það er það sem gerist þegar menn eru með góðan rekstur og halda vel utan um fyrirtæki, þá aukast viðskipti við viðkomandi fyrirtæki. Ég benti á það í umræðunni áðan að þetta lén er eitt öruggasta og besta lén í heimi. Það er mér sagt og hefur komið fram í fjölmiðlum. Það er auðvitað þess vegna sem það gerist. Það er ekki bara vegna þess að menn vilji skrá einhver lén án þess að einhver árangur eða ástæða sé til þess. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt. Um það deilum ég og hæstv. ráðherra ekki. Þeir sem stýra þessu fyrirtæki hafa staðið sig vel. Þeir hafa í raun og veru byggt upp internetið á Íslandi og eiga miklar þakkir skildar fyrir það. Eins líka fyrir að halda utan um málefni .is þegar það fór á vergang eins og hæstv. ráðherra kom inn á áðan. Það er auðvitað mikilvægt að hv. nefnd fari ítarlega yfir þetta og ég efast ekki um að það verði gert. Mér finnst reglugerðarheimildirnar miklar, sérstaklega þær sem snúa að starfsleyfunum. Oft hefur verið haft orð á því að reglugerðarheimildir til hæstv. ráðherra séu miklar en þarna eru líka töluverðar heimildir opnar fyrir Póst- og fjarskiptastofnun.