sjúkraskrár.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 55/2009, um sjúkraskrár. Tilefni frumvarpsins er að skýra frekar ákvæði 7., 14. og 15. gr. laga um sjúkraskrár með hliðsjón af hlutverki embættis landlæknis og velferðarráðuneytisins þegar tekin er ákvörðun um aðgang að sjúkraskrám. Markmið frumvarpsins er að taka af allan vafa um rétt borgarans til að bera synjun um aðgang að sjúkraskrá, hvort sem um er að ræða eigin sjúkraskrá eða sjúkraskrár látins aðstandanda, undir embætti landlæknis. Jafnframt er lagt til að heimildir til að kæra þessar synjanir og ákvarðanir um leiðréttingu eða eyðingu sjúkraskrárupplýsinga til ráðherra verði felldar brott.
Í frumvarpinu er loks lagt til að bætt verði við lögin ákvæði um nauðsynlegan aðgang tæknimanna að sjúkraskrárkerfum þar sem slíkt ákvæði er ekki að finna í lögunum í dag.
Helstu efnisatriði frumvarpsins eru í fyrsta lagi að lagt er til að jafna stöðu borgaranna þannig að ávallt verði heimilt að bera synjun sjúklings um aðgang að eigin sjúkraskrá og aðgang að sjúkraskrá látins einstaklings undir embætti landlæknis, það sé skýrt ákvæði. Þar hafa komið upp ágreiningsmál. Eru þeir því ekki lengur bundnir af því að um sé að ræða tilgreind tilvik sem falla undir ákvæði 2. og 3. mgr. 14. gr. og 15. gr. laganna.
Í öðru lagi er hér ákvæði um að nægilegt þykir í málum um aðgang að sjúkraskrá sé bara eitt kærustig. Er því lagt til að ákvarðanir embættis landlæknis um aðgang að sjúkraskrá og ákvarðanir um leiðréttingu eða eyðingu sjúkraskrárupplýsinga séu endanlegar á stjórnsýslustigi, þ.e. hjá landlækni. Skiptir máli í því sambandi að líta til þess að ákvarðanirnar eru almennt faglegs eðlis og eðlilegt að leitað sé til landlæknisembættisins fremur en ráðuneytis um endurskoðun þeirra. Að sjálfsögðu er ávallt heimilt að bera ákvarðanir og niðurstöður frá landlækni um aðgang að sjúkraskrá undir dómstóla.
Í þriðja lagi eru í frumvarpinu gerðar úrbætur á ákvæðum laganna um aðgang tæknimanna að sjúkraskrárkerfum þannig að heimilt sé að sinna nauðsynlegri uppfærslu, vinnslu og viðhaldi sjúkraskrárkerfa, það sé ótvírætt. Í núgildandi lögum kemur afdráttarlaust fram að ekki má veita neinum öðrum aðgang að sjúkraskrám en umsjónaraðila sjúkraskráa er heimilt að veita starfsmönnum sem vinna að þjónustu við tölvu- og upplýsingakerfi nauðsynlegan aðgang að sjúkraskrárkerfi í þeim tilgangi að sinna vinnslu, uppfærslu og viðhaldi kerfisins svo hægt sé að vinna við kerfin, án þess þó að að hleypa starfsmönnum inn í sjálfar einstaklingsupplýsingarnar. Þar gilda allar sömu trúnaðarundirskriftir og hjá heilbrigðisstarfsfólki.
Hæstv. forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum þessa stutta frumvarps, en breytingar þær sem hér eru lagðar til varða hagsmuni borgara og réttindi sem er sérlega mikilvægt að séu skýr og afdráttarlaus gagnvart lærðum sem leikum.
Ég leyfi mér því að leggja hér til, hæstv. forseti, að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og til 2. umr.