141. löggjafarþing — 67. fundur,  17. jan. 2013.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2010.

505. mál
[16:12]
Horfa

Frsm. fjárln. (Ásbjörn Óttarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svo að ég svari fyrstu spurningunni, þar sem hv. þingmaður spyr hvort ég sé sáttur við þá stöðu sem komin er upp af því að ég skrifaði ekki undir álitið með fyrirvara, þá er niðurstaða nefndarinnar mjög skýr í þessu áliti. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Fjárlaganefnd telur afar brýnt að sem fyrst verði gripið til viðeigandi ráðstafana til að stemma stigu við þeim sívaxandi vanda sem felst í því að iðgjöld duga hvergi til að standa undir skuldbindingum sjóðsins.“

Það er alveg skýrt, enginn afsláttur er gefinn á því.

Hv. þingmaður bendir réttilega á það sem við höfum svo oft rætt hér áður þegar talað er um afkomu ríkisins. Við tókum fjárlög 2013 sem dæmi, þá var klárlega innbyggður halli upp undir 30 milljörðum sem hægt var að færa rök fyrir í ræðustól. Ég gerði það margoft og margir aðrir hv. þingmenn. Enginn stjórnarliða, ekki einu sinni hæstv. fjármálaráðherra, treysti sér til að koma hingað og gera athugasemdir við einn einasta lið sem talinn var upp, efnislega, með upphæðum og öllu — enginn. Það er innbyggður halli í fjárlögum.

Það er líka rétt sem hv. þingmaður segir að þegar við erum að fara yfir þetta, og ég sagði það í inngangi mínum, þá á samkvæmt fjárreiðulögum að leggja fram ríkisreikning og lokafjárlög samhliða. Ég fór yfir það hér. Núna erum við í raun og veru, og það sjá allir, í algjörlega vonlausri stöðu að því leyti að við getum sagt að við séum nánast að klára umræðuna um afkomu ríkissjóðs fyrir árið 2010 um miðjan janúar 2013. Á sama tíma eru stærstu hlutafélögin og félögin hér á landi að skila ársskýrslum og niðurstöðum á rekstri sínum fyrir árið 2012. Það er mjög skýrt tekið fram hér að þessu verður að breyta. Ríkisreikning samkvæmt fjárreiðulögum og lokafjárlög á að leggja fram samhliða og eins þarf skýrsla Ríkisendurskoðunar um ríkisreikninginn að koma fram þannig að hægt sé að afgreiða mál hér með skikkanlegum hætti.

Eitt af þeim atriðum sem því miður stoppaði þó að samstaða væri um það í hv. fjárlaganefnd var að færa mörkuðu tekjurnar beint til ríkisins í staðinn fyrir að hafa flækjustigið eins og það er. Þetta deilum við ekki um, ég og hv. þingmaður. Þessu verður að breyta.