141. löggjafarþing — 67. fundur,  17. jan. 2013.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2010.

505. mál
[16:31]
Horfa

Frsm. fjárln. (Ásbjörn Óttarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég tek undir það sem fram kom í hans máli og hefur oft verið tekið hér upp að það er mikið áhugaleysi þegar menn ræða um fjárlögin, nema þegar á að fara að útdeila peningunum, þá gefa menn sér tíma til þess.

Hv. þingmaður sagði að hann saknaði þess að B-deildar lífeyrissjóðanna væri getið í skýrslu fjárlaganefndar. Skuldbinding B-deildarinnar er færð í ríkisreikning. Það sem fjárlaganefnd er að benda hér á er að skuldbindinga A-deildarinnar, sem eru að vaxa og vaxa, er einungis getið í skýringum en þær eru ekki færðar inn í reikninginn. Það er það sem fjárlaganefnd krefst og ætlast til þess að verði gert. Það verði komið í lag í lokafjárlögum 2012.

Ég tek það hins vegar sem góðri ábendingu hjá hv. þingmanni þegar hann bendir á að æskilegt væri að í næsta áliti fjárlaganefndar um ríkisreikning væri ákveðinn kafli um samanburð á niðurstöðu ríkisreiknings og lokafjárlaga miðað við fjárlög og fjáraukalög. Þetta er mjög þörf og fín ábending og mikilvægt að það verði gert. Við sjáum að þegar við ræðum þessi mál erum við fjalla um lokafjárlög, um rekstur ríkissjóðs, einu til einu og hálfu ári eftir að honum er lokið. Hvað horfir maður þá fram á? Það er auðvitað búið að eyða öllum peningunum. Hvað ætla menn að gera í lokafjárlögum með það sem búið er að eyða? Auðvitað verður að breyta þessu og koma þeim aga sem hv. þingmaður talar um inn í fjárlögin þannig að menn fari eftir fjárlögum og engu öðru. Við þurfum líka að taka á þessum mörkuðu tekjum til þess að ná einhverjum tökum á ríkisfjármálunum, það er gríðarlega mikilvægt í þessari stöðu.

Þess vegna tek ég undir með hv. þingmanni, að það sé sérstaklega fjallað um niðurstöðu lokafjárlaga og ríkisreiknings miðað við fjárlög og fjáraukalög. Það er mjög þörf og góð ábending.