141. löggjafarþing — 67. fundur,  17. jan. 2013.

skráð trúfélög.

132. mál
[16:50]
Horfa

Auður Lilja Erlingsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég hef að sjálfsögðu vissa samúð með flutningsmanni sem lýsir sig efnislega sammála mér um málið eins og fram hefur komið. En það sem ég er að velta fyrir mér er rökstuðningurinn sem kemur fram í áliti meiri hlutans fyrir því að skapa sátt um næstu skref en svo eru ekki lögð til nein skref. Það finnst mér eilítið skrýtið.

Til að mynda hefði eitt skrefið sem hefði mátt taka verið það að ætlast til þess af foreldrum sem vilja að barn sitt sé í trúfélagi að þeir mæti sjálfir og skrái barnið í trúfélag. Ég tel það ekki mjög öfgakennda beiðni til foreldra sem vilja að börn sín séu skráð og ég held að það hefði ekki átt að rugga bátnum mjög mikið, en sú leið var ekki farin.

Það kemur fram í ýmsum álitum gagnrýni á þessa leið og mér finnst m.a. að mark hefði mátt taka á Mannréttindaskrifstofu Íslands sem gagnrýnir nákvæmlega þetta og leggur til að foreldrar eigi sjálfir að sjá um skráningu barna í trúfélög en ekki ríkið.

Í stuttu máli finnst mér sjónarmið meiri hlutans vera efnislega þessi: Öll rök hníga að því að breyta fyrirkomulaginu, en við ætlum samt ekki að leggja það til.