141. löggjafarþing — 67. fundur,  17. jan. 2013.

rannsókn samgönguslysa.

131. mál
[18:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er hárrétt sem kemur fram hjá hv. þm. Ásbirni Óttarssyni og kom raunar fram í umræðum á þingi fyrr í dag, þó að það hafi verið í umræðu um annað mál, að auðvitað á þingið ekki að óska eftir umsögnum ef það ætlar síðan lítið að gera með þær. Það á aldrei að vera þannig. Ég er sammála þingmanninum um að það er miður ef ytri umsagnaraðilar líta svo á. Ef svo er þurfum við klárlega að taka til í okkar ranni á þinginu.

Ég vil meina að sú reifun meiri hlutans sem kemur fram í því að áskilja sér allan rétt til að bregðast við ef niðurstaða málsins eða afleiðing frumvarpsins verður á þann hátt að menn hafi áhyggjur af rannsóknum á slysum sé fyrst og fremst af varúð og ég tek heils hugar undir það. Það er mikilvægt fyrir þjóð eins og okkur, sem á mikið undir því að slysarannsóknir og slysavarnir séu öflugar, að þingið sé einmitt mjög virkt í því.

Fyrst ég á nokkrar sekúndur eftir af ræðutímanum þá minni ég í þessu sambandi á að sá sem hér stendur hefur einmitt flutt tillögur á Alþingi um þetta efni og hyggst gera það aftur.