141. löggjafarþing — 68. fundur,  22. jan. 2013.

fjárfestingar í atvinnulífinu.

[13:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Frú forseti. Hv. þingmaður fer hér mikinn og talar um einstakar atvinnugreinar og hvernig þessi ríkisstjórn á að hafa saumað að þeim. Við erum líklega eitt af fáum ríkjum í Evrópu sem höfum verið með hagvöxt á síðustu tveimur árum, meira en 2%. Við höfum verið með vöxt í samfélaginu þrátt fyrir mikla erfiðleika þannig að það er ekki hægt að halda því fram að hér sé allt í kaldakoli. Það er aukning í atvinnuvegafjárfestingu. Það er heldur ekki hægt að halda því fram að svo sé ekki þó að menn gjarnan vildu teikna upp einhverja aðra mynd. Við erum að ná jöfnuði í ríkisfjármálum. Hér er heilmikið að gerast og það hefur ekki staðið á þessari ríkisstjórn að grípa til aðgerða til að örva atvinnulífið, t.d. með ívilnanapökkum vegna nýfjárfestinga sem skila okkur stórframkvæmdum.

Við sjáum líka fjölgun í komum ferðamanna upp á 20% á síðasta ári. Þeir eyða meiru á Íslandi þannig að það er ekki hægt að segja að hér hafi þessi ríkisstjórn saumað að ferðaþjónustunni, þvert á móti. Það hefur verið lagt í mikla vinnu til að styðja við hana og sjávarútvegurinn hefur líklega aldrei skilað jafnmiklu og einmitt á síðasta ári.