141. löggjafarþing — 68. fundur,  22. jan. 2013.

afnám verðtryggingar.

[13:54]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hver áform hennar og Samfylkingarinnar eru varðandi afnám verðtryggingarinnar á næstu fjórum árum.

Hvaða tillögur hefur ráðherrann um aðgerðir á þessu kjörtímabili annars vegar og á næsta kjörtímabili hafi hún og flokkur hennar til þess völd?

Hyggst ráðherrann leggja til bann við verðtryggingu neytendalána?

Hyggst ráðherrann setja 4% þak á hækkun verðbóta með almennum lögum líkt og við framsóknarmenn höfum lagt til?

Hyggst ráðherrann koma í veg fyrir að fjármálafyrirtæki geti grætt á verðbólgu með því að krefjast jafnvægis á milli verðtryggða eigna og skulda þeirra?

Hyggst ráðherrann endurskoða reglugerðir um ávöxtunarkröfur lífeyrissjóðanna?

Hyggst ráðherra breyta því hvernig staðið er að fjárlagagerð þannig að ekki sé um að ræða sjálfkrafa hækkanir tengdar vísitölu neysluverðs í útgjöldum ríkisins, og hvað, ef eitthvað, hyggst ráðherrann gera til að svara kalli almennings eftir afnámi verðtryggingar?

Ég veit að þetta hljómar eins og margar spurningar en það er tiltölulega auðvelt fyrir ráðherrann að fara í gegnum spurningarnar og segja já eða nei. Það er líka hægt að benda ráðherranum á að við í þingflokki framsóknarmanna höfum lagt fram í tvígang frumvarp sem er til meðferðar hjá efnahags- og viðskiptanefnd með einmitt þessum tillögum. Ég vona að ráðherrann hafi kynnt sér þær tillögur sem byggðu meðal annars á vinnu sem var unnin á vegum þáverandi efnahags- og viðskiptaráðherra um afnám verðtryggingar.

Það kom fram nýlega í könnun á Bylgjunni að verðtryggingin og skuldamálin eru meðal þeirra mála sem almenningur hefur einna helst áhyggjur af.