opinber störf á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Mig langar að beina orðum mínum til hæstv. innanríkisráðherra sem fer með málefni sveitarfélaga í stjórnsýslunni. Tilefnið er það að í gærkvöldi birtist viðtal við formann Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Bjarna Jónsson, sem segir að ráðuneyti séu að brjóta lög við flutning opinberra starfa á milli landshluta. Lítið sem ekkert samráð sé haft við heimamenn á viðkomandi svæðum eins og lög geri þó ráð fyrir.
Hér vísar formaður Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra til 97. gr. sveitarstjórnarlaga þar sem fjallað er um landshlutasamtök sveitarfélaga. Þar segir, með leyfi virðulegs forseta:
„Ráðuneyti og opinberar stofnanir skulu ávallt leita umsagnar hlutaðeigandi landshlutasamtaka um stefnumótun eða ákvarðanir sem varða viðkomandi landsvæði sérstaklega.“
Á síðustu árum, til að mynda frá árinu 2008, hefur verið gripið til margvíslegra fjármálalegra ráðstafana sem haft hafa mikil áhrif á sveitarfélög vítt og breitt um landið. Það hefur m.a. falist í því að skorin hafa verið niður fjárframlög til einstakra stofnana sem skipt hafa miklu máli, m.a. til grunnstofnana eins og heilbrigðisstofnana sem hafa auðvitað sjálfstæða þýðingu og eru þar að auki mjög mikilvægir vinnustaðir fyrir margt fólk á þessum svæðum. Það er með öðrum orðum alveg ljóst að slíkt inngrip hefur haft veruleg áhrif á viðkomandi landsvæði. Ef við tökum t.d. bara Skagafjörð hefur verið sýnt fram á að opinberum störfum þar hefur fækkað um 15% frá árinu 2008. Í heilbrigðisstofnuninni einni hefur verið fækkað um 33 stöðugildi eða um 28%, og á Veiðimálastofnun, sem var með litla starfsemi þar fyrir, hefur störfum fækkað um 75%. Það er alveg ljóst mál að þetta hefur haft umtalsverð áhrif í þá átt að fækka fólki í Skagafirði. Það kom nokkuð á óvart vegna þess að þar hefur byggðin verið á margan hátt styrkari en sums staðar annars staðar, (Forseti hringir.) en þetta eru beinar afleiðingar af aðgerðum ríkisvaldsins.
Ég spyr hæstv. ráðherra: Hefur ráðuneyti hans með einhverjum hætti komið að því máli í ljósi þess sem ég vitnaði til? Hyggst hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) bregðast við í ljósi þess að erindi um það hafa borist ráðuneyti hans og öðrum ráðuneytum?