141. löggjafarþing — 68. fundur,  22. jan. 2013.

skyldutrygging lífeyrisréttinda.

469. mál
[14:27]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að eins og fyrirkomulagið er núna þar sem heildarlöggjöf um lífeyrissjóði er í höndum fjármálaráðuneytisins, það sé ágætt fyrirkomulag og hafi reynst vel. Það er þá heildaryfirsýn yfir lífeyrissjóðina, þ.e. að það sé á einni hendi. En ef Alþingi ákveður að breyta því fyrirkomulagi, þá verður það svo. Ég held að það sé undir Alþingi komið að ákveða hvar hvað á að vera hjá framkvæmdarvaldinu.

Virðulegi forseti. Ég hef svo sem ekkert á móti því að láta frá mér verkefni en ég held hins vegar að fyrirkomulagið eins og það er nú sé hið besta mál. Ég tek undir það með hv. þingmanni að auðvitað er það best að fá sem gleggsta mynd af ríkisrekstrinum sem allra, allra fyrst þannig að við getum alltaf verið að vinna með sem nýjastar tölur og við séum alltaf með niðurstöðurnar sem nýjastar, þ.e. að við ljúkum gerð ríkisreiknings sem fyrst en það bíði ekki lengi.

Hins vegar verða menn líka að gefa sér tíma til að ljúka því, þetta er flókið fyrirbæri, þetta er það mikið sem þarf að fara yfir og stemma af. Við skulum því sjá hvort það sé raunhæft að ætla að það geti verið tilbúið eins snemma og hv. þingmaður nefnir. En ég er alltaf til viðræðu um að reyna að flýta því og láta menn fá þau verkfæri sem til þarf svo það geti orðið.