skyldutrygging lífeyrisréttinda.
Frú forseti. Það er beint samhengi á milli raunvaxta og eignaverðs. Ef ákveðin eign gefur af sér ákveðna arðsemi sem er fyrir fram ákveðin og vextir hækka þá lækkar verð á eigninni vegna þess að það myndast aðrir kostir sem menn geta fjárfest í. Það er einmitt það sem hv. þingmaður sagði, eignaverð lækkar, ekki bara vegna þess að lífeyrissjóðirnir selja heldur vegna þess að vextir, raunvextir munu hækka.
Nú er það þannig að fólk lifir að meðaltali í um 13–14 ár eftir að það hefur töku lífeyris og starfsævin er ekki nema 30 ár þannig að segja má að helmingurinn af starfsævinni sé á ellilífeyristímanum. Þess vegna verður ellilífeyrir alltaf töluvert lægri en laun og það er hæpið að reikna með sparnaðargetu fólks þegar það er komið á eftirlaun, mjög hæpið. Þess vegna held ég að menn eigi að skoða miklu betur þau aldursmörk sem voru ákveðin af Bismarck 1891, þessi 67 ár. Það var þá meðalaldur hermanna en nú hefur meðalaldur hækkað verulega. Menn ættu því að skoða vel að hækka þessi viðmið, þennan meðalaldur, sérstaklega fyrir þá sem eru vinnufærir og sprækir og vilja vinna. Vinnan er nefnilega miklu meira en bara brauðstrit. Vinnan er líka hlutverk og félagslegt atriði þannig að ég tel að það sé engum manni greiði gerður að gera hann að lífeyrisþega nema hann endilega vilji það og það eru ekkert voðalega margir sem vilja það.
Þannig að ég hugsa að viðbrögð okkar við öldrunarvandamálinu svokallaða þegar frískt fólk er komið á lífeyri ættu að vera fólgin í því að hækka lífeyrismörkin.