141. löggjafarþing — 68. fundur,  22. jan. 2013.

rannsókn samgönguslysa.

131. mál
[16:02]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Við höldum áfram umræðu um frumvarp til laga um rannsókn samgönguslysa sem var frestað fyrir helgi. Meginmarkmið frumvarpsins er að minnsta kosti tvíþætt, annars vegar að sameina lagabálkinn utan um þessar rannsóknir á flugslysum, sjóslysum og bílslysum og hins vegar að steypa rannsóknarnefndunum, sem eru þrjár í dag, í eina. Þetta mál hefur komið hér fram að minnsta kosti í þrígang áður á fyrri löggjafarþingum þessa kjörtímabils. Alla tíð hefur þau dagað uppi og þau ekki verið kláruð. Mín skoðun er sú að það sé betra.

Markmið þessara laga er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Ekki getum við deilt um að þetta eru göfug markmið og fín. Auðvitað eru allir sammála um að það væri eðlilegt að ná þessum markmiðum en ég hef hins vegar miklar efasemdir um að það náist með því að setja nefndirnar þrjár undir eina. Það hræðist ég. Ekki er þetta gert af sparnaði vegna þess að útgjöld ríkissjóðs munu aukast þó að fyrirkomulagið sé þannig í dag að nefndirnar eru þrjár og í þeim samtals 13 nefndarmenn. Síðan er gert ráð fyrir því að eftir sameiningu verði ein sjö manna nefnd en þá er reyndar gert ráð fyrir því að formaður nefndarinnar fari í um 30% starfshlutfall sem skýrir að meginhluta kostnaðinn og þar fyrir utan er gert ráð fyrir tíðari fundum hjá þessari sjö manna nefnd en hjá hinum þremur.

Augljóslega er ekki verið að spara peninga með þessu og þá spyr maður hvers vegna fara eigi í þessa vegferð. Markmið laganna er skýrt. Þegar maður fer svo yfir nefndarálit meiri hlutans sem leggur til að fara þessa vegferð hér verð ég að segja að þar koma fram klárlega miklar efasemdir. Ég leyfi mér að leggja það þannig út. Það kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans að umsagnaraðilar hafi gert ýmsar athugasemdir við málið á fyrri stigum. Það er meira að segja kveðið svo fast að orði, sem er rétt, að hjá fulltrúum núverandi rannsóknarnefnda hafi það sjónarmið verið áberandi að sameining nefndanna kynni að koma niður á faglegum þáttum rannsóknanna. Þá gefur augaleið að verði það niðurstaðan, sem ég óttast, við það að samþykkja þessi lög næst ekki fram fyrsta markmið laganna sem er í 1. gr. frumvarpsins um að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum. Ef menn taka þessa ábendingu hér alvarlega, sem ég hef gert í gegnum tíðina, mun markmið frumvarpsins ekki ná fram að ganga. Í nefndaráliti meiri hlutans eru tíndar til athugasemdir fagnefndanna þriggja sem á að sameina í eina og þá koma fram þessar efasemdir sem vitnað var í en síðan kemur merkilegur texti sem ég ætla að vitna í, með leyfi forseta:

„Á fundum nefndarinnar og í gögnum sem lögð voru fyrir hana komu fram gagnstæð sjónarmið af hálfu innanríkisráðuneytisins.“

Ekki er það ætlun mín að gera lítið úr því fólki sem skilar þessum upplýsingum til nefndarinnar af hálfu innanríkisráðuneytisins, það má ekki skilja orð mín þannig, en ég hefði talið að það ætti að hlusta meira á fagleg sjónarmið og þær athugasemdir sem koma frá fagnefndunum sjálfum. Ég teldi það mun skynsamlegra. Svo kemur líka fram í áliti meiri hlutans:

„Ráðuneytið telur verulegar líkur á því að með sameiningu núverandi rannsóknarnefnda í eina rannsóknarnefnd verði unnt að koma þekkingu og starfskröftum sem þegar eru fyrir hendi í eina sterka og öfluga sameinaða nefnd.“

Þá staldra ég við tvennt, annars vegar að ráðuneytið telur „verulegar líkur“ á að það muni ganga eftir sem það ætlar sér og maður hlýtur að spyrja: Er það réttlætanlegt? Á að fara í tilraunastarfsemi?

Það má auðvitað skilja textann þannig. Það eru taldar verulegar líkur á því að ná fram því sem ætlunin er að mati innanríkisráðuneytisins og ráðherrans en þeir sem fjalla um málin og bera ábyrgð á þeim í dag hafa miklar efasemdir um að það muni ganga fram. Þá getur maður ekki annað en spurt: Er það virkilega þannig að það eigi að gera tilraunir með því að steypa þessu saman? Er þetta einhvers konar tilraunastarfsemi?

Ekki ætti það að vera, og það er auðvitað ekki þannig, að sameining rannsóknarslysanefnda geti verið pólitískt deilumál. Það er algjörlega útilokað mál. Þetta er spurning um það hvernig menn leggja við hlustir og taka mark á ábendingum. Það er líka sagt í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn minnir á það eftirlitshlutverk sem Alþingi og nefndir þess fara með gagnvart framkvæmdarvaldinu og áskilur sér fullan rétt til þess að grípa inn í ef þörf krefur.“

Hvað segir þetta okkur? Ég skil það þannig að það séu ákveðnar efasemdir hjá meiri hlutanum í hv. umhverfis- og samgöngunefnd um að þessi markmið og þessi vegferð sem hér er farin gangi eftir. Ég geri mér fulla grein fyrir því að nefndir þingsins gegna eftirlitshlutverki gagnvart framkvæmdarvaldinu en að sjá svona setningu í áliti meiri hlutans segir manni ekkert annað en að nefndin hefur ákveðnar efasemdir.

Síðan kemur fram í nefndarálitinu að það sé mat meiri hlutans að rétt sé að láta reyna á þá samþættingu sem boðuð er í frumvarpinu. Það undirstrikar enn frekar það sem ég er að benda hér á, að hv. þingmenn í umhverfis- og samgöngunefnd hafi þessar efasemdir. Og skal engan undra. Ef maður fer yfir umsagnir þeirra sem þeim hafa skilað við meðferð þessa máls er rosalega sláandi að lesa til dæmis umsögn frá rannsóknarnefnd sjóslysa. Hvert skyldi vera niðurlag þeirrar umsagnar? Nú vil ég fá að vitna, með leyfi forseta, orðrétt í hana:

„RNS vill vekja athygli á því að við umfjöllun frumvarpsins þegar það hefur áður verið lagt fram hefur í engu verið tekið tillit til athugasemda RNS og því verður að telja ólíklegt að það þjóni tilgangi að eyða miklum tíma í að senda athugasemdir við frumvarpið. Því álykta má sem svo að athugasemdum sé enginn gaumur gefinn.“

Þetta ætti að vera þörf áminning fyrir Alþingi. Þeir aðilar sem ég vitna í frá rannsóknarnefnd sjóslysa eru að lýsa meðferð málsins. Ekki er um það deilt að þeir aðilar sem stýra rannsóknarnefnd sjóslysa og sitja þar, bæði starfsmenn nefndarinnar og þeir sem sitja í henni, hafa náð mjög miklum árangri í rannsóknum á sjóslysum og ekki síst, sem er gríðarlega mikilvægt, hafa þeir aðilar sem að þessu standa náð trúnaði við þá sem lenda í óhöppum. Það er gríðarlega mikilvægt að ná þessu sambandi milli þeirra aðila sem lenda í þessum slysum og þeirra nefnda sem rannsaka þau til þess að geta brugðist við og eins að ná fram þeim markmiðum frumvarpsins að rannsóknirnar á slysunum verði betri og þar af leiðandi væri hægt að bregðast við þeim með þeim hætti að það mundi fækka slysum.

Þetta hlýtur að vera mikið umhugsunarefni. Það kom fram í umræðunni fyrir helgi í andsvörum milli þess sem hér stendur og hv. þm. Ólafs Þórs Gunnarssonar — hann er formaður nefndarinnar og kemur þannig að þessu máli núna með því að fá það í fangið og þarf að fylgja því áfram — að nefndin muni fara yfir þetta milli 2. og 3. umr., þ.e. málið fer aftur inn til nefndar.

Fleiri umsagnir bárust. Hér er önnur sem nokkuð margir aðilar standa að og þar eru gerðar athugasemdir og bent á það sem þarf að vera. Ég fer betur yfir umsagnaraðilana á eftir en ætla að leyfa mér, með leyfi forseta, að vitna orðrétt í umsögnina:

„Í stuttu máli þá er það mat samtakanna að:

1. Það sé ekki verið að auka skýrleika og skilvirkni þeirra laga sem í gildi eru.

2. Með þessu frumvarpi sé dregið úr sjálfstæði rannsóknarnefndanna sem hefur verið styrkt með núgildandi lögum.

3. Hvergi er sýnt fram á að hver samlegðaráhrifin yrðu við slysarannsóknir í einstökum greinum. Slysarannsóknir krefjast mikillar sérþekkingar og reynslu, samanber þá staðreynd að það gilda ekki sömu alþjóðlegu reglur um rannsókn slysa og að sérstök sjónarmið gilda um hverja tegund starfsemi eðli málsins samkvæmt.

4. Engin rök er að finna í frumvarpinu sem sýna fram á að rannsóknum sé ábótavant eða hafi verið það.

5. Sátt ríkir um núgildandi fyrirkomulag slysarannsókna, en með frumvarpinu er umhverfið sett í óþarfa óvissu.

6. Engin gögn voru lögð fram við undirbúning frumvarpsins til að rökstyðja þá hagræðingu sem ná á samkvæmt frumvarpinu. Upplýsa ber um það kostnaðarmat sem ráðuneytið hefur gert.

Samtökin hafa óskað eftir samráði við stjórnvöld varðandi undirbúning þessa máls, en því miður hefur ráðuneytið ekki kallað eftir samvinnu við samtökin, sem væri hinn eðlilegi gangur málsins, enda í allra þágu að slysarannsóknum sé sinnt af fagmennsku fyrir alla hlutaðeigandi. Við leggjum því til að frumvarpið nái ekki fram að ganga.“

Hverjir skyldu hafa þessar athugasemdir sem ég var að lesa upp og leggja til að frumvarpið nái ekki fram að ganga, kalla eftir rökum um þá punkta sem þeir taka hér saman og sýnt verði fram á með haldbærum gögnum að gangi eftir?

Þetta eru Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, Sjómannasamband Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Félag vélstjóra og málmtæknimanna.

Því hlýtur að vera eðlileg krafa að það verði farið yfir þetta mál með þeim hætti að markmið frumvarpsins nái fram að ganga, það verði sýnt fram á þau með efnislegum rökum. Nú eru þessir aðilar sem ég fór yfir og skila sameiginlegu áliti búnir að fara yfir þetta mál á fyrri stigum. Þegar við fórum yfir málið í hv. samgöngunefnd fannst mér málflutningur þessara aðila í rökræðunni í hv. nefnd þannig að það væri auðvitað skylda þingsins að taka mark á honum.

Þó að það hafi orðið breyting á þessu frumvarpi frá því að það var lagt fyrst fram fyndist mér að það ætti að taka mun meira mark á athugasemdunum. Það er rosalega dapurlegt að þegar umsagnir koma til að mynda frá rannsóknarnefnd sjóslysa og þessum aðilum öllum sem ég taldi hér upp sjái menn í fyrsta lagi ekki tilganginn í því að setja inn athugasemdir og ábendingar af því að það er ekki tekið mark á þeim og telji í öðru lagi mikilvægt að málið nái ekki fram að ganga.

Eru þetta ekki akkúrat þeir aðilar sem snúa til dæmis að rannsóknum á sjóslysum? Við erum með sjálfa nefndina, sjómennina, útvegsmennina og slysavarnafélagið. Hvað þarf til viðbótar? Ég veit að enginn ætlar þessum aðilum annað en að vilja efla og bæta rannsóknir á sjóslysum. Þetta er sýn þeirra á málið. Nei, bæði ráðuneytið leggur fram málið, jú, vissulega lítillega breytt að mínu mati svo ég sé ekki ósanngjarn í gagnrýni minni en eigi að síður velur meiri hluti nefndarinnar að taka við efnislega afgreiðslu málsins meira tillit til eða mark á, hvaða orð sem við notum um það, á sýn ráðuneytisins en þeirra sem ég leyfi mér að kalla fagaðila. Hún setur þá sýn til hliðar þó að hún varði aðeins leiðina og segi: Það er mikilvægt að fylgjast með og grípa þá inn í.

Þetta er mál af þeim toga að ekki er hægt að bjóða upp á neina tilraunastarfsemi. Svo ég fari aðeins yfir það hvernig þetta er sett upp er þetta að sumu leyti áhugamennska hjá að minnsta kosti einstaka nefndarmönnum. Þeir menn sem sitja til dæmis í rannsóknarnefnd sjóslysa hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði og þetta er eins konar áhugamál. Það er ekki eins og menn fari inn í þetta til að fá fyrir setuna miklar greiðslur, eins og til að mynda í stjórnum ýmissa monthúsa, t.d. Hörpu. Nei, þetta er áhugamennska. Hjá þeim sem þarna sitja er markmiðið það eitt að reyna að bæta rannsóknir, bæta ástandið þannig að hægt verði að bregðast við og árangurinn verði sá að fækka slysum.

Það trúnaðarsamband sem hefur áunnist á milli þessara aðila er gríðarlega mikilvægt. En, nei, það skal tekið meira mark á því sem kemur úr innanríkisráðuneytinu, með fullri virðingu fyrir því fólki. Ég er ekki að tala það niður, ég ætla því ekki að reyna að gera annað en það sem hér stendur. Ég tel hins vegar mikilvægara að hlusta á fagfólkið.

Síðan er líka sá þáttur sem snýr að rannsóknarnefnd flugslysa og það er búið að taka tillit til hluta af því sem þar kemur fram. Hér er ítarleg umsögn frá þeirri nefnd líka en það er margt annað efnislegt sem ég hvet hv. nefnd til að fara yfir því að það eru ekki miklar breytingar. Í breytingartillögum meiri hlutans er fallist á eina breytingu sem er orðalagsbreyting, að í stað orðsins „sakamálum“ komi „dómsmálum“. Það er eina breytingin sem hv. samgöngunefnd gerir þrátt fyrir allar þær athugasemdir sem hér liggja fyrir. Það eru mjög ítarlegar ábendingar sem ég næ ekki að fara yfir í þessari ræðu minni og snúa að því sem rannsóknarnefnd flugslysa gerir. Þær eru að mínu viti sumar þess virði að fara mjög vandlega yfir og taka til efnislegrar umræðu milli 2. og 3. umr. Í sumum þeirra breytinga sem þessi ágæta nefnd hefur gert á fyrri stigum málsins hefur verið brugðist við athugasemdum.

Virðulegi forseti. Þess vegna segi ég það að ég hvet hv. þingmenn í umhverfis- og samgöngunefnd til að fara vandlega yfir þetta mál milli 2. og 3. umr. og fara ítarlega yfir þær efnislegu og vel rökstuddu athugasemdir og kalla þá eftir þeim rökstuðningi sem farið er fram á að komi fram við afgreiðslu málsins af hálfu ráðuneytisins eða þingsins, hvernig sem við viljum orða það. Það er ótækt að við séum með einhverja tilraunastarfsemi þegar við förum í þessa vegferð. Það er meira að segja bent á eina aðferð sem rannsóknarnefnd sjóslysa tiltekur sérstaklega í sínu áliti og hefur komið fram á fundum nefndanna, að ég tel víst, að minnsta kosti í samgöngunefnd á sínum tíma, að menn voru tilbúnir að taka efnislega rekstrarþáttinn inn, það voru ákveðnir þættir sem færu betur þannig, en ekki að steypa í mótið sem hér er gert því að það gæti haft þær afleiðingar að við færum aftur á bak í rannsóknum á sjóslysum.