141. löggjafarþing — 69. fundur,  23. jan. 2013.

störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Forseti. Mig langar að ræða undir þessum lið um störf okkar þingmanna og skora á þingið að taka ekki kjördæmaviku heldur nota þá viku í þingstörf. Mér finnst óeðlilegt í aðdraganda kosninga að þingmenn neyti aflsmunar að því leytinu til að fara í kosningabaráttu í sínum kjördæmum. Mörg mikilvæg mál liggja fyrir þinginu sem mér finnst að við eigum að afgreiða. Það er talað um mikinn tímaskort. Ég skora á stjórnarliða sérstaklega að beita sér fyrir því að við verðum hér á þinginu í kjördæmavikunni og jafnframt höfða ég til restarinnar af minni hlutanum.

Mér beini því til forseta þingsins að við störfum lengur á hverju kvöldi þannig að við náum öllu því sem fyrir liggur. Það er mikið af málum sem hafa verið lengi í vinnslu á þinginu og mér þætti agalega sorglegt að sjá þau verða að engu. Mig langaði bara að athuga hvort ekki væri stemmning fyrir því meðal samþingmanna minna að við tækjum hreinlega þá ákvörðun að vinna lengur á hverjum degi í stað þess að tala stöðugt um tímaleysi. Ég er tilbúin til þess og ég vona að fleiri séu tilbúnir til þess.