141. löggjafarþing — 69. fundur,  23. jan. 2013.

störf þingsins.

[15:10]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Fyrir atvinnuveganefnd þingsins liggur þingsályktunartillaga um stefnumótun í nýtingu sjávarorku. Hún er flutt af fulltrúum allra flokka og um þriðjungur þingsins stendur á bak við hana. Þetta er í annað eða þriðja sinn sem hún er flutt. Ég vildi nota tækifærið til að skora á atvinnuveganefnd að leita allra leiða til að afgreiða tillöguna til síðari umræðu í þinginu þannig að hún megi verða að veruleika svo að stefnumótun Alþingis í nýtingu sjávarorku sé komið í farveg áður en þingi verður slitið núna í apríl.

Merkum áföngum hefur verið náð í því mikla þróunarstarfi sem staðið hefur yfir. Valorka ehf. hefur fengið einkaleyfi á hverfli í sjávarorkunýtingu sem er eini íslenski hverfillinn sem hefur fengið einkaleyfi. Liggi ekki fyrir stefnumótun stjórnvalda í þessum málum og þar með aðgengi að þolinmóðu fjármagni, til að fjármagna frekari rannsóknir og upphaf nýtingar á sjávarorkunni, er hætta á því að það merka þróunarstarf stöðvist. Þetta eru vænlegustu tækifæri Íslendinga til verðmætasköpunar á sviði orkutækni án þess að gengið verði frekar á náttúrugæði, sem er alltaf mjög umdeilt eins og við þekkjum í margendurtekinni umræðu í þinginu um rammaáætlun og fleira er varðar land og orkunýtingu. Þess vegna er stefnumótun Alþingis mjög mikilvæg. Ríkissjóður hefur í gegnum Tækniþróunarsjóð lagt fram tiltekið fjármagn og fyrir liggja styrkupphæðir til IPA-styrkja og fleiri upp á háar fjárhæðir og þær gæti komið þolinmótt fjármagn til að halda þessum rannsóknum áfram.

Um er að ræða mjög merkilegt starf sem hefur skilað árangri og því hefur undið fram með jákvæðum hætti. En þessar rannsóknir og þessi tækniþróun í sjávarorkunýtingunni getur stöðvast ef þingsályktunartillagan verður ekki afgreidd og samþykkt. Ef hún verður samþykkt opnast aðgengi að þolinmóðu fjármagni fyrir það stórmerka frumkvöðlastarf sem getur skilað okkur Íslendingum gífurlegum verðmætum í framtíðinni án þess að frekar verði gengið á viðkvæm og verðmæt náttúrugæði.