141. löggjafarþing — 69. fundur,  23. jan. 2013.

störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Allt frá upptöku kvótakerfisins 1984 hafa verið miklar deilur um eignarhald á kvótanum, hverjir megi sækja sjó, hverjir hafi til þess heimild, hvort hún sé framseljanleg o.s.frv.

Hér hafa verið boðuð frumvörp um eignarhald á kvóta sem ekki hafa enn verið lögð fram. Hins vegar hefur verið lagt fram og samþykkt frumvarp um veiðigjald sem fer stighækkandi og þegar byrjað að leggja á fyrsta gjaldið sem er þá lægst en fer hækkandi.

Mig langar til að spyrja hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur, 7. þm. Norðvest., sem er mikill áhugamaður um eignarhald á kvóta hvort hún viti eitthvað af örlögum þess frumvarps sem hefur verið boðað að verði lagt fram um eignarhald á kvóta. Það hefur ekkert bólað á því á þessu þingi. Það var lagt fram á síðasta þingi en varð ekki afgreitt. Nú er stutt eftir og miklar annir í mörgum öðrum málum og ég spyr hv. þingmann, sem er stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar og hlýtur þá að vita eitthvað um þetta, hvort þetta kvótafrumvarp muni koma fram og ef ekki, hvort hugmyndinni um það sé þá frestað yfir á næsta kjörtímabil og hvort hún sé sátt við það.