störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að nálgast orð síðasta ræðumanns um stjórnarskrána varlega vegna þess að ég held að við, í það minnsta að sum hver okkar, höfum sýnt fullan vilja til að semja um einhvern frágang á þessu máli og átt um það fundi. Ég velti því hins vegar fyrir mér hvað formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á við þegar hún talar um valdastéttir. Ef háskólaprófessorar og lögspekingar eru valdastéttir þá hlýtur þingmaðurinn að vera að vísa til þeirra því að það eru fyrst og fremst þeir sem hafa gagnrýnt þetta mál mjög harkalega, málsmeðferð þess, tillögur og annað. Ef stjórnarmeirihlutinn vill nálgast málið af skynsemi erum við að sjálfsögðu tilbúin til þess, eins og hefur komið fram í yfirlýsingum frá þingmönnum Framsóknarflokksins.
Ég kom hingað upp af því að ég gleymdi áðan að hv. þm. Birgitta Jónsdóttir talaði hér um kjördæmavikuna. Ég vil benda þingheimi á að kjördæmavikan er hluti af þingstörfum. Það er hluti af störfum okkar þingmanna, í það minnsta okkar þingmanna landsbyggðarinnar, að fara út á land og hitta kjósendur og ræða við þá og það gerum við allt árið. Við fáum til þess, ef ég man rétt, tvær vikur á ári eða um það bil að fara út í kjördæmin á hverju þingi. Það kemur ekki til greina að taka af okkur að nota þann tíma til þess.
Stóru málin sem við eigum að sjálfsögðu að ræða á næstu vikum og mánuðum eru að mínu mati málefni heimilanna og atvinnumálin, hvort við sem erum búin að sitja á þingi í fjögur ár ætlum að skila af okkur heilu kjörtímabili án þess að hafa tekið almennilega á málefnum heimilanna, án þess að leggja til raunhæfa uppbyggingu í atvinnulífinu. Er það virkilega þannig? Er ekki rétt að spóla aðeins til baka og fara yfir þær tillögur sem hafa verið lagðar fram og liggja frammi, m.a. frá stjórnarandstöðunni, um það hvernig megi taka á þeim veigamiklu málum sem mestu skipta á næstu mánuðum?