141. löggjafarþing — 69. fundur,  23. jan. 2013.

fjárhagsstaða íslenskra heimila.

[15:56]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U):

Virðulegi forseti. Ég hitti nýlega konu sem hafði tapað vinnunni og síðan húsinu. Konan sagðist vera reið, ekki vegna þess að hún var látin greiða fyrir hrunið, heldur vegna þess að við sem þjóð nýttum ekki tækifærið eftir hrun til að koma á réttlátu samfélagi, samfélagi þar sem fólk þarf ekki að treysta á andverðleikaklíkuna til að fá vinnu eða lagabrot til að fá leiðréttingu á forsendubresti í kjölfar efnahagshruns.

Óréttlætið í samfélaginu dregur sífellt meira úr greiðsluvilja fólks. Óréttlætið hefur orðið til þess að fjöldi heimila, sem eru með ágætistekjur, íhugar að fara í gjaldþrot. Fjöldagjaldþrot heimila með verðtryggð lán mun kosta samfélagið miklu meira en almenn leiðrétting forsendubrestsins.

Virðulegi forseti. Hvorki atvinnulífið né ríkið mun geta staðið undir þeirri raunlaunahækkun sem þarf til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot á næstunni og að eignalaust fólk haldi áfram að flytja af landi brott.

Það er ekki nóg að afnema verðtrygginguna strax eða með þaki, það verður að keyra vaxtastigið niður og leiðrétta verðtryggðar skuldir. Leiðréttinguna er hægt að fjármagna með því að eignarhaldsfélag Seðlabankans gefi út skuldabréf sem er þá notað til að lækka skuldir heimilanna, skuldabréfið síðan greitt niður með því að leggja skatt á útgreiðslur úr þrotabúum gömlu bankanna og með aflandskrónuskatti.

Virðulegi forseti. Hættum að ala á vonleysinu í samfélaginu og setjumst niður og leysum skuldavanda heimilanna.