141. löggjafarþing — 69. fundur,  23. jan. 2013.

fjárhagsstaða íslenskra heimila.

[16:07]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (U):

Frú forseti. Mér finnst sanngirninnar vegna að minna þurfi á að auðvitað hefur ýmislegt verið gert og skuldavandi heimilanna hefur verið eitt stærsta ef ekki stærsta viðfangsefnið á þessu kjörtímabili. Afskriftir hafa boðist almenningi eftir ýmsum leiðum. Það kann að vera rétt að það séu flóknar leiðir en þær hafa engu að síður boðist. Dómsmál hafa hjálpað til. Boðið hefur verið upp á leiðir til að lækka greiðslubyrði á lánum, sem var auðvitað mjög aðkallandi, nauðungarsölur voru stöðvaðar, það er ýmislegt í lagasetningu hér á þingi sem orðið hefur til þess að liðka fyrir óverðtryggðum lánum þannig að óverðtryggð lán eru í raun og veru orðin ríkjandi á markaðnum.

Stofnað var embætti umboðsmanns skuldara, sem ég held að sé líka mjög mikilvægt til langs tíma. Umboðsmaður skuldara hefur víðtækar heimildir til að afskrifa lán í gegnum frjálsa samninga hjá einstaklingum. Samþykkt voru lög um greiðsluaðlögun, sem var líka mjög mikilvægt, og vaxtabætur hækkaðar. Ég hugsa því að óhikað megi segja að ef ekkert af þessu hefði verið gert væri ástandið auðvitað miklu verra.

Svo er spurning um hvort ekki hefði mátt gera meira. Ég var þeirrar skoðunar og ég held að við höfum verið það flest þegar við glímdum við þessi mál í eftirleik hrunsins. Mjög margar hindranir, t.d. eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, öftruðu því að hægt væri að fara í vissar leiðir í afskriftum. Eins enduðu mjög mikilsverðar hugmyndir um afskriftir oft bara sem mjög erfiðar spurningar um tilfærslu fjármuna milli kynslóða eða hópa. Þar stöndum við enn.

Við þurfum að gera meira. Ég hef áhyggjur af hópnum sem er með lánsveð, ég hef áhyggjur af hópnum sem ekki hefur efni á því að greiða fyrir húsnæði þó að búið sé að afskrifa allt. En ég hef mestar áhyggjur af einu, það er að ekki hefur myndast fyrir því samhljómur í þessum sal að stærsti vandinn sem við glímum við sé sá að lánin eru of dýr á Íslandi og hafa alltaf verið það. (Forseti hringir.) Íslenskur almenningur nær þar af leiðandi ekki endum saman. Við þurfum stöðugleika, við þurfum að ná niður verðbólgu og við (Forseti hringir.) þurfum að einbeita okkur að því.