raforku-, fjarskipta- og samgöngumál Vestfirðinga.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa umræðu, þakka hv. meðflutningsmanni mínum að þessari umræðu, hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur, fyrir frumkvæði í þessum efnum. Í þeirri óveðurshrinu sem gekk yfir milli jóla og nýárs komu í ljós margs konar veikleikar sem við verðum að takast mjög vel á við. Ég reyndi að kynna mér þessi mál eftir föngum með því að heimsækja Orkubú Vestfjarða, sveitarstjórnarmenn, lögregluna, snjóflóðaeftirlitsmenn, eftir að hægt var að ferðast um á norðanverðum Vestfjörðum eftir óveðurshrinuna. Það er alveg ljóst að viðbragðsaðilarnir tókust á við þetta vandamál af miklum dugnaði. Það reyndu allir að gera sitt besta og ég vil að það komi mjög skýrt fram. Það komu engu að síður fram miklir veikleikar á þessu kerfi sem við verðum að takast á við, bæði á sviði samgöngumála, eins og hér hefur verið rakið, raforkumála og fjarskiptamála.
Að sumu leyti þurfti þetta ekki að koma okkur á óvart. Við höfum talað um og kallað eftir úrræðum varðandi orkuafhendingaröryggi á Vestfjörðum um langa hríð. Menn hafa viðurkennt að orkuafhendingaröryggi sé mjög óviðunandi og sú stefna hefur verið mótuð að byggja upp mikið dísil- og varaafl á Vestfjörðum. Það sem þarna brást hins vegar var það að varaaflsstöðvarnar sjálfar biluðu. Sumar þessar vélar eru orðnar ævagamlar og geta þess vegna bilað af minnsta tilefni. Nú hefur verið mótuð sú stefna að byggja eigi upp mikið og öflugt dísilorkukerfi á Vestfjörðum, bæði á sunnanverðum Vestfjörðum og norðanverðum Vestfjörðum. Og nú er það einfaldlega þannig að það sem við getum gert fyrst og hraðast er að tryggja að þetta verði gert tafarlaust og þetta verði bæði látið ná til norðanverðra og sunnanverðra Vestfjarða því að það er ekki hægt að búa við ástand eins og þarna blasti við okkur. Í þessu sambandi vil ég líka vekja sérstaka athygli á þeirri stöðu sem hefur verið uppi í Árneshreppi, bæði núna og reyndar oft áður, þar sem fólk hefur búið við mikinn skort á orkuafhendingaröryggi um langa hríð.
Ég fagna þessari umræðu og ég fagna því ef menn taka harkalega og vel (Forseti hringir.) á þessu máli. Þetta brennur mjög á fólki. Þetta er ekki bara vandamál sem við glímum við við þessar aðstæður heldur oft og tíðum líka við aðrar og betri aðstæður.