141. löggjafarþing — 69. fundur,  23. jan. 2013.

raforku-, fjarskipta- og samgöngumál Vestfirðinga.

[16:28]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu, hún er gríðarlega mikilvæg. Hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir hefur meðal annars vitnað til frétta af óveðrinu sem þarna gekk yfir, hún hefur lýst því hvernig þetta var. Umhverfis- og samgöngunefnd fékk á fund til sín nokkra aðila til að ræða þetta óveður, hvað það hafði í för með sér. Ég held að engu sé ofaukið í því sem hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir kom inn á, það var bara tímaspursmál, það munaði bara örlitlu, að Vestfirðir yrðu algjörlega fjarskiptalausir. Það er mjög mikið áhyggjuefni. Það kom líka fram að Neyðarlínan var ekki í sambandi við lögreglu, slökkvilið og annað því um líkt. Sambandið þar á milli rofnaði þannig að ekki var hægt að stýra þessu miðlægt eins og er svo mikilvægt þegar svona kemur upp á.

Ég vil þó segja, af því að þetta er stór málaflokkur, þarna eru samgöngumál, raforkumál, fjarskipti o.fl., að það sem mestu skiptir, og ef við horfum til skamms tíma, er að tryggja öryggið í fjarskiptamálunum og raforkumálunum. Það er það sem klikkaði algjörlega þarna. Ég tek undir með hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni, það sem hann kom inn á varðandi raforkumálin og orkuöryggið og þær tillögur sem liggja þar til úrbóta. Ég held að þingheimur ætti núna að sameinast um það. Fyrir fjárlög ársins 2013 ákvað Alþingi, með meirihlutastuðningi eftir tillögur frá ríkisstjórninni, að taka 370 milljónir út úr Rarik og Orkubúi Vestfjarða í formi arðgreiðslna. Ég held að þingheimur ætti að sameinast um að veita þessa fjármuni í að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum og bæta fjarskiptaöryggi þar.

Þetta eru gríðarlega háar fjárhæðir, (Forseti hringir.) 370 milljónir, sem teknar eru þarna út úr orkufyrirtækjunum inn í ríkissjóð. Þetta gæti verið fyrsta verkefnið í því að stíga (Forseti hringir.) stutt skref á langri vegferð.